Nýja hugsun og breytt aðferðafræði, engu að tapa

Ragnar Freyr læknir og sérfræðingur bendir réttilega á að þau úrræði sem nú er beitt gegn faraldrinum ganga seint upp. Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra talar á svipuðum nótum hér á blogginu fyrir nokkrum dögum.

Björn er með mikla reynslu í að greina málefni líðandi stundar og tekur skellega afstöðu þegar honum þurfa þykir. Björn segir í dagbók sinni 7. janúar í grein sem hann nefnir:

"Vítahringur sýnatökunnar. Nýjustu tölur sýna að nú hafi 300 milljónir manna smitast af kórónuveirunni í heiminum öllum. Þá er bent á að það hafi tekið rúmlega eitt ár að 100 milljónir smituðust, helmingi skemmri tíma að talan hækkaði í 200 milljónir en aðeins fimm mánuði að hækka hana í 300 milljónir.... Sé rennt yfir fjölmiðla í nokkrum löndum föstudaginn 7. janúar sést að sú skoðun á vaxandi hljómgrunn meðal sérfræðinga og ráðgjafa stjórnvalda að athyglinni skuli ekki lengur beint að þessum tölum heldur að fjölda þeirra sem þurfa sjúkrahúsvist."

Ragnar Freyr fyrrverandi yfirmaður Covid-göngudeilar Landspítalans gefur stjórnvöldum aftur og aftur góðar ábendingar. Hann hefur staðið í víglínunni þar sem tekist er á við smitsjúkdóminn, veit hvað hann talar um og kemur með lausnir sem hlýtur að þurfa að grandskoða. Hans orð eru athyglisverð og skoðunarverð í litlu þjóðfélagi þar sem breytingar á faraldrinum er auðvelt að mæla. Ragnar segir í löngu viðtali m.a.

Miðað við fjölda sýna er því kostnaður­inn um það bil 50 til 100 millj­ón­ir á dag. Það er ansi mik­ill pen­ing­ur ef aðferðin síðan skil­ar ekki einu sinni ár­angri og þá fór ég að velta fyr­ir mér, er mögu­leiki að ná ár­angri með ein­hverj­um öðrum aðferðum?“ seg­ir Ragn­ar.

Ragn­ar bæt­ir við að auðvitað verðum við að beina sjón­um að þeim sem verst fara út úr Covid-19 smiti. "Það séu þeir sem eru aldraðir, með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma og ónæm­is­bæld­ir, t.d. vegna krabba­meinsmeðferðar. Þannig væri kannski ráð að beina sjón­um okk­ar að því að skima þá ein­stak­linga þegar þeir fá ein­kenni."

Við sem tökum á móti flóði frétta á hverjum degi af smitsjúkdómnum getum lítið annað en farið með gát og tekið undir það sem okkur þykir athyglisvert.

 

 


mbl.is Peningurinn í spítalann frekar en PCR-próf?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband