Veðurfréttir í vámánuði? Lofa skal leiðtoga

Það eru margir sunnudagsprestar í flokkunum, þeir sjá leikfléttu í hverju skrefi hjá þeim sem standa vaktina. Dómsmálaráðherra Jón Gunnarsson er ódeigur við að velta málum upp og fá skýra stefnu fram. Einn gagnrýnandinn orðaði það þannig að ríkisstjórnin væri eyðslustjórn og með buxurnar á hælunum. 

Sá hinn sami er að taka til í sínum garði, minnka hraðann á prentvélunum. Hlusta á sannindi sem blöstu við fyrir löngu. Ekkert verður til úr engu, sviti, tár og endurskoðun er það sem flestir læra að þurfi til að ná árangri. Að tala mannalega um varnir og vöktun þarf til að búa fámenn í Norður-Atlandshafi? Lágmarks flugfloti er nauðsynlegur til að tryggja öryggi og þjálfun. Áður voru þyrluslys tíð en með betri tækjum, aukinni þjálfun og öryggisreglum er sá tími að baki. 

Hvort slönguvélin TF-Sif sé það nauðsynlegasta í breyttum heimi, þegar mörg fyrirtæki geta boðið upp á þá þjónustu sem hún kann að veita er ákvörðun fyrir Gæsluna og pólitískan yfirmann hennar. Merkilegt er að landamæraeftirlit á höfunum skuli ekki vera meira tengt starfseminni á Keflavíkurflugvelli. 

Það hefur komið í ljós í óveðrunum í vetur að þótt millilandaflugvélar geti lent fullar af farþegum komast þeir ekki útúr vélunum fyrir veðurofsa. Aftur erum við áminnt um að við búum á við eitt mesta veðravíti á norðurhveli. Framundan er sá kafli þegar veðurhæðin verður hvað mest.

Aðeins með umræðu og vangaveltum fram og aftur er hægt að breyta stöðunni. Láta flugvélarnar aka inn í veðurskýli og láta farþega fara út á upphituðu svæði. Síðan fara áfram neðanjarðar í lest til flugstöðvar? Ein hliðin á peningnum sem á að tryggja öryggi? Til þess þarf ráðamenn sem þora eða samheldan hóp sem tryggir málinu eftirfylgni.


mbl.is Varað við vondu veðri og stormi um allt land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband