Blaðaútburður, líkamsrækt og tálvonir

 Í minni götu er vinsælasta starfið fyrir unga sem gamla að sjá um blaðaburð. Fá borgað gönguferðir 6 daga vikunnar í stað þess að fara langar leiðir í líkamsræktarstöðvar. Í sundlaug bæjarins var litlu horni með nokkrum átakstækjum lokað í morgun. Þar var allt til fyrirmyndar og mikið af sprittefnum og hreinsun tækja. Til sundlaugar og í heita kjaftapotta var óheftur aðgangur.

Hróplegt ósamræmi er greinilega á ferðinni og virðist sem þríeykið sé með óvirkar lokunaraðgerðir. Lokað er á líkamsræktarstöðvar þar sem engin smit hafa átt sér stað og á þeim stöðum sem sýna vandaða umgengni með sprittvörnum og hreinsiefnum. Sóttvarnarlæknir virðist hafa yfirlit yfir þá aðila þar sem æfingasmit hafa greinst og gæti látið loka þeim. Gagnrýni eigenda líkamsræktastöðvar er réttmæt og að loka frekar á sölu á áfengi tímabundið á meðan hertar aðgerðir standa yfir.

Að hafa leikhús og ýmsa aðra starfsemi hins opinbera opin fyrir 50 - 100 manns er enn eitt ósamræmið. Vonir sóttvarnarlæknis og forsætisráðherra um að eftir enn meiri lokanir verði loks náð tökum á veirunni eru tálvonir.


mbl.is Ófyrirsjáanleg og ósanngjörn veira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband