Föngulegur samstöðuhópur

Fólk skiptist í tvo hópa þegar rætt er um flóttamenn. Þeir sem hafa mikið að gefa og treysta sér til að veita fólki tímabundið skjól og aðstoð. Hinn hópurinn eru fullir öfga og vilja enga aðstoð veita, halda jafnvel að þeir sjálfir missi spónn úr aski sínum. Logi Bergmann kallar þennan hóp "vont fólk." Sýnir skorinorða afstöðu sína.

Utanríkisráðuneytið fær hundruð milljóna aukafjárveitingu 2016. Yfir 10% hækkun þegar önnur ráðuneyti eru með 2-3%. Ekki fara þessir peningar til að aðstoða flóttafólk. Hvað hefur utanríkisráðuneytið áorkað til að fá viðlíka hækkanir.

Tími er komin til að leggja álögur á alla vopnasölu og hergagnaframleiðslu. Fjármagn sem væri notað til að standa undir flóttamannavanda sem styrjaldir leiða af sér. Sáudi-Arabía og Katar gætu þá ekki skorast undan. Svíar virðast standa sig vel í að aðstoða og eru að verða alþjóðlegt samfélag.

 


mbl.is „Snýst um að bjarga lífi fólks“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Er ekki mikilvæg byrjun, að mannúðar/siðferðisvæða fjárfestingastofnanir og alla bankarununa heims-FLÉTTUÐU? Annars er voðinn vís fyrir þetta blessaða fólk allt saman.

Það þarf varla að taka svo langan tíma að breyta reglum bankabrjálæðisins, svo það verði ekki mögulegt  fyrir ómannúðlega og siðlausa falda valdið að gera enn meiri alvöru en orðið er, úr þessum heimsmiðstýrðu þrælaflutningum?

Bankastjórnir og fjárfestingarfélags-foringjar heimsins hljóta að skilja að siðmenntun og mannúð er alveg óumflýjanleg, þegar ástand heimsins er orðið svona siðlaust og tortímandi fyrir allt manneskjanna líf á jörðinni.

Nú beinast öll siðferðis og mannúðarspjót að þeim sem hafa raunverulegu völd jarðarheimsins, í formi rændra og falsaðra peningagjaldmiðla og hernaðargagna/efnaframleiðslu.

Gróðurhúsaógnin fölnar í samanburði við hernaðargagna og þrælaógnina.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 12.9.2015 kl. 18:08

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Frakkar, Bretar, Þjóðverjar og Svíar eru helztu þjóðirnar í Evrópu sem senda uppreisnarmönnum í Sýrlandi vopn.

Halda mætti að öfgakennd innflytjendastefna Svía sé til komin af þeirra vonda samvizkubiti.

Jón Valur Jensson, 12.9.2015 kl. 18:47

3 Smámynd: Sigurður Antonsson

Svíar selja vopn til ISIS uppreisnarmanna en ekki til Sáda. Vopnasala Svía hefur aukist um tugi prósenta á síðustu árum. Forsætisráðherra Svíþjóðar er mjög jákvæður gagnvart sýrlenskum flóttamönnum sem koma til landsins. Efast að það sé samviskubitið sem leiðir hann. Þær Evrópuþjóðir sem hafa selt mest af vopnum til Sýrlands. Frakkar og Englendingar taka tiltölulega við fáum. Sýnir best vitfirðinguna í vopnasölunni.

Sigurður Antonsson, 12.9.2015 kl. 20:43

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Sigurður erum við ekki að veita flóttafólki aðstoð nú þegar og höfum undanfarin ár. Það eru tugir að streyma inn í landið og munu fylla alla kvóta áður en þeir verða ákveðnir. Við eyðum milljónum í uppihald og styrki,lögfræðikostnað. Segðu mér aftur að við Íslendingar séu ekki að gera neitt...

Valdimar Samúelsson, 13.9.2015 kl. 00:36

5 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Þeir íslandsbúar sem raunverulega þekkja svikafjárfestingar-fléttur opinbera "velferðar/siðmenntunar-dómskerfisins" á Íslandi skilja hættuna sem bíður þeirra sem koma hingað, og hafa samfélagsskylduga ábyrgð. Ábyrgð gagnvart þeim sem ekki skilja tungumálið, lögfræðiblekkinga-brellurnar, svika-svartholin og varnarleysi þeirra eignar og valdalausu. Sem óhjákvæmilega fylgir slíkum undirheima-kúgunarstjórnarháttum ósýnilegra yfirmanna falda valdsins Alþjóðabanka-ræningjastýrða, sem viðgengst á Íslandi.

Það er ábyrgðarlaust að bjóða fólk velkomið í óhreinsaða ormagryfju valdafíknar/hagnaðar-græðgi, sem er stunduð á Íslandi, án þess að tryggja raunverulega siðmenntað velferðar-dómskerfi fyrir alla.

það ætti að gera það að skilyrðislausri fyrstu kröfu í öllum ríkjum, að banka/fjárfestinga/hergagnaframleiðslu-brjálæðið sem er orsök vandans í heiminum, verði skyldað til mannúðar og siðmenntar. Þessi falda valdsins öfl heimsbanka/fjárfestinga-sjóða, (banka/lífeyrissjóða-skattaskjóðu), allra ríkjafrímúraratoppa fléttuspillingarinnar eru með líf og réttindi allra jarðarbúa í gíslingu bankaræningjanna.

Og það er ekki neitt nýtt í sögunni.

Banka/fjárfestingasjóða-rán eru tölvustýrð peningafölsunarstarfsemi, og stýrð af ósnertanlega falda valdinu í heiminum. Á Íslandi er "banka/sjóða-kerfið" utan allra marka raunverulegrar mennsku og siðferðisvirðingar. Bara fráls óhindruð mannskepnan í sinni grimmustu og sjúkustu mynd?

Fáir þora að afhjúpa sjúkustu heimsvaldatoppana, því ómannúðin, siðleysissjúkdómarnir og ótrúlegur skepnuskapurinn er svo skelfilegur, sem fylgir því að hlýða ekki öldungum valníðslunnar í valdaríkjunum jarðarheimsins.

Sumir furða sig kannski á því að ég biðji almættið algóða um að hjálpa og leiðbeina mér og öðrum.

Almættið algóða hjálpi þeim sem vaða í þeirri villu að trúa svo mikið á svokallaða "forsætisráðherra/ríkisstjórnir" með mannlega breyskleika og hótanir gíslatökuforingja yfir sér og gjörðum sínum?

Að trúa einungis á kerfisstýrða hjálp grimmustu skepnu jarðarinnar? Að telja sig ekki þurfa að auðmýkja sig fyrir alvitra visku og umbeðnar (bæn) leiðbeiningar frá GÓÐU ORKUNNI!

Leiðbeiningar frá almættinu stangast á við leiðbeiningar kúgaðra, villuráfandi og hertekinna forsvarsmanna ríkjanna. Leiðbeiningar valdhafandi peningaguðsins Mammons-djöfulsins eru samdar af helsjúkri valdagráðugri og illri orku.

Á jörðinni hafa allir frjálsan meðfæddan vilja sinnar eigin sálar, en ekki frjálsa tilveru hér á valdníðinganna helsjúklega stýrðri jörðinni. Þarna stangast hið illa og hið góða svo mikið á, að ekki er mögulegt að lifa samkvæmt kærleiksboðskap sannkristninnar hér í heiminum, ef hið illa fær að stjórna áfram.

Allir verða sjúkir af smitandi siðleysi og græðgi, ef engin mótspyrna hinnar góðu orku er virkjuð í náungakærleiks-hugarfari einstaklinganna. Uppskriftin kemur ekki frá Vatíkaninu Mammonvegsins villuráfandi, og síst af öllu ef enginn biður af einlægum náungakærleika um þá uppskrift, og biðja fyrir sjúklegri stjórnun þaðan. Maður drepur ekki fólk, til að fá heimsfrið. Það er dauðadæmd aðferð illu orkunnar.

Vegurinn verður til meðan við erum á lífsins göngu, með skilyrðislausum og fyrirgefandi náungakærleiks hugarfarinu, næringarfræðilegri þekkingu, og heiðarlegum vísindalækningum. Andleg og líkamleg næring og umhyggja er öllum lífsnauðsynleg, ef fólk á að geta virkað til góðs. Það er staðreynd sem fær of litla umfjöllun í heimsfjölmiðlunum valdamiklu.

Hvernig veljast menn til valda? Hvernig voru Hitler og Stalín staddir félagslega og umhyggjulega staddir með sjálfa sig?

Var/er það einungis tilviljun hvernig menn veljast og eru þjálfaðir/kúgaðir til verka? Þetta er ósvöruð samviskuspurning, sem allir ættu að velta fyrir sér af einlægni. Og sérstaklega valdamestu og færustu sálfræðingar og félagsfræðingar heimsins.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 13.9.2015 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband