"köldu andaði milli sakbornings og saksóknara"

Óvenjulegt er að sakborningar hafi málfrelsi í dómsal? Magnús bendir réttilega á að saksóknari hafi farið yfir öll skynsamleg mörk við húsleit. Hafskipsmenn voru á sínum tíma niðurlægðir með handtökum snemma morguns. Gæsluvarðhaldsvist er að mestu óþörf og misnotuð til að veikja varnir hins grunaða. Á Íslandi og í Noregi hefur verið gengið lengra en í flestum löndum Norðurálfu.

Arne Treholt var vistaður undir ströngu eftirliti árum saman. Ákærur, ásakanir og dómur eins og úr einni skotpípu. Knud Pedersen Hamsun var vistaður á geðveikrahæli og er ennþá óuppgert vandaræðabarn í norskri þjóðarsál.

Sjaldgæft er að sakborningar fái að tjá sig fyrir dómi eftir misvitrar yfirheyrslur undir óvenjulegum kringumstæðum. Mannréttindadómstóll Evrópu leggur mikla áherslur á að fyrir dómi skuli fara fram ítrekaðar yfirheyrslur ef þurfa þyki.

Fyrrverandi hæstaréttardómari Jón Steinar sagði nýlega í hinu merka sjónvarpi ÍNN að endurteknar yfirheyrslur væru óþarfar, þær breyttu engu. Óvenjuleg yfirlýsing dómara sem lagði áherslu á réttlæti í dómssölum.

Það kann að breyta nokkru að hér eru hæfileikamenn í annað sinn dregnir fyrir dómara. Þeir gætu haft áhrif á tíðarandann eins og skáldin. Í Rússlandi kom fyrst sannleikurinn fram þegar skáld höfðu talað undir rós í nokkur ár. Jón Hreggviðsson lifir í þjóðarsálinni, hýddur og barinn, en þjóðfélagið heldur áfram göngu sinni inn á nýjar fallvaltar brautir.

 

 

 


mbl.is Ábyrgðarfullt að sitja í sæti Björns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband