Litbrigðin, litaskipti, lithvörf og tærleikinn sem sjá má í landslaginu eru sjónrænir dýrgripir. Mynd sem sýnir Eyjafjallajökull spúa eldi og brennisteini hátt til himins er toppurinn. Maímánuður er mánuður andstæðna, þegar norðanvindur og ís mæta vorsól og grænum grundum við sjávarsíðu. Iðagræn tún á Kjalarnesi mót fannhvítri slæðu Esju. Rabarbarinn minn hnéhái með sínum stóru blöðum leit út eins og margar öfugar regnhlífar í vindi. Snjófjúk í kvöldsólinni og söngur sandlóu lofa morgundaginn.
Að uppgötva Ísland er ekki aðeins á myndfletinum, hinu sjónræna, heldur er maturinn íslenski fjársjóður. Fólk verður að leggja talsvert á sig til að kanna og reyna. Ekki er nóg að snæða aðeins hjá meistarakokkum eins og Þrem Frökkum. Vinningurinn getur verið í næstu búð. Fisksali minn var með nýja smálúðu í dag og stórlúðuhausa í gær.
Ég fékk hjá honum miðlungslúðuhaus og þvílíkt lostgæti. Að viðbættum engifer, pipar, blaðlauk, hrísgrjónum og kartöflum var eins og nýr kraftur færi um allan líkamann þegar lúðubeinin voru sogin. Nýr rabarbaragrautur með rjóma í eftirrétt er kóróna á daginn.
Nístandi norðanáttinn er ógnvekjandi en með réttum meðulum má vinna á henni. Besta gjöfin til yngri kynslóðarinnar og auglýsing er að kunna að lesa í gjafir náttúru.
Ungir
hagfræðingar og spákaupmenn í Ameríku eiga bróðurpartinn í því hruni sem varð á
fjármálamarkaði. Ríkisstyrkt kerfi andskotans oft kennt við jöfnuð.
Reglulega heyrast raddir þeirra í Silfrinu eða á síðum dagblaðanna. Jón
Steinsson hagfræðingur og kennari við Columbíu háskóla sendir okkur reglulega
pistla um úrbætur gegn verðbólgu og ráðleggingar til Seðlabankamanna. Í Fréttablaðinu
í dag brýnir hann fyrir Seðlabanka að hækka "stýrivexti" um 2.5% til
að vinna á "sjálfsprottni verðbólgu". Augljóst er hann býr ekki í
landinu og veit ekki hvaða afleiðingar það hefur á hag heimila og fyrirtækja á
næstu misserum. Veit hann að meiri hluti fyrirtækja á í erfileikum og eru í
stoðkerfi banka.
Hagfræðingar vitna gjarnan í hagtölur og tala um minnkandi
atvinnuleysi. Atvinnuleysið er eitt blekkingarstigið sem kemur hagfræðingum út
af sporinu. Á vormánuðum eykst framkvæmdahugur og ýmislegt
fer í gang sem ekki á við aðra ársfjórðunga, því minnkar atvinnuleysi nú um 1.2%. Strandveiði hefst og óvenjumikill
afli hefur borist á land í byrjun árs. Þá er Vinnumálastofa að fara á stað með
atvinnuátak sem kostað er af atvinnurekendum. Veit Jón um að atvinnurekendur
sem bjóða upp á tímabundin störf fá ekki starfskrafta til vinnu nema að leita
út fyrir landsteina.
Verðbólga getur aldrei verið sjálfsprottin. Hún á sínar orsakir og
jarðveg. Ríkisstjórnin byrjaði árið með skattahækkunum, meðal annars á bensín.
Síðan tók Seðlabankinn ákvörðun um tímabundna gengislækkun, gengissig sem nú er
að ganga til baka. Sem afleiðing hækkaði
verðlag og ríkissjóður fékk meira í kassann af veltisköttum. Allt þetta hefðu
menn getað séð fyrir væri hugur á að horfa í baksýnisspegilinn. Lítill áhugi
virðist hjá stjórnvöldum á að halda niðri verðbólgu og standa fyrir samráði
gegn henni með lífeyrissjóðum, launafólki og atvinnurekendum. Þá er lítill
áhugi á að tengjast strax öðrum gjaldmiðli vegna þess að það kallar á víðtækt aðhald.
Opnun Bauhaus í
dag, byggingakeðju með uppruna í lágvaxtalandinu Sviss gæti stuðlað að lækkun
verðbólgu. Tækifærin til að ná tökum á verðbólgu eru mörg en lágir vextir eru
lykillatrið, þar hefur Bauhaus forskot. Ef vextir
eiga eftir að hækka meir á innlendum fyrirtækjum mun forhlaup erlenda
fyrirtækja aukast og heimamenn verða meiri áhorfendur og þiggjendur
Fuglaáhugamenn geta verið ágengnir og hver veit nema það sé verið að stugga við þeim. Álftanesmenn hafa ekki alltaf verið með á nótunum og hver segir að það eigi að vera bílaumferð um hlaðið á Bessastöðum. Nú þegar líkur eru á því að barnafjölskylda setjist að á höfuðbólinu er alveg eins gott að fara með gát.
Margir eru farnir að spá í spilin og sitt sýnis hverjum. Eitt er víst að sjónvarpið lýgur ekki til um vinsældir og áhrif. Sjónvarpsmenn eru inn á hverju heimili daglega og ríkissjónvarpið hefur sérstöðu með skylduáskrift.
Sjónvarpið hefur síðan það kom veitt frambjóðendum forskot að forsetastólnum hafi þeir stjórnað þar þáttum.
Önnur atriði sem skipta máli er félagsfærni og skátastarf frambjóðenda. Að vera ávallt viðbúin og með þjónustulund. Þessir eiginleikar eru mikilvægari en skotsilfur sem alltaf má afla með góðum stuðningsmönnum. Áræðni maka og framsæknar ættir auka möguleika frambjóðenda á kjöri.
Háskólagráður í alþjóðlegum stjórnmálum er nýr þáttur sem hjálpar til og stuðlar að kosningu ásamt góðri tungumálakunnáttu.
Þegar við bætist geislandi greind og gjörvileiki er leiðin orðin greið til Bessastaða. Ekki spillir fyrir lýðveldinu að hafa börn eins og hjá konungum, framtíð þeirra er aðalmálið.
Norðmenn hafa sýnt mikla samstöðu og styrk í harmsögu, þegar veikur maður fremur voðaverk. Geðrof amerísk flugstjóra í háloftunum í
dag er sturlun þar sem rétt var brugðist við. Aðstoðarflugstjóri biður um hjálp
farþega til að koma í veg fyrir slæmar afleiðingar. Sturlun getur verið af
ýmsum toga en oft á hún rætur að rekja til óhugnanlegra upplifunar viðkomandi
persóna. Margir segja í barnæsku, en í Bandaríkjunum eru mýmörg dæmi um örvilnun
og voðaverk sem hafa samlíkingu í stríðsátökum. Sömu sögu er að segja frá
nýlegum voðaverkum á Íslandi og í Frakklandi. Harmsaga bankahrunsins hefur ekki
verið öll skrifuð á Íslandi en margt býr undir niðri. Geðveiki og þjóðfélagsleg
átök eru ekki góð blanda en svo virðist sem allar þjóðir þurfi að glíma við sinn skerf.
Í Noregi eru skiptar skoðanir á málefnum útlendinga og nokkrir öfgamenn þar eins og í flestum ríkjum. Þar sem alið er á þjóðarrembingi er frekar hætta á átökum i stað umburðalyndis og gagnkvæms
skilnings. Norðmenn eru ákaflega umburðarlyndir gagnvart fólki af erlendum
uppruna í dag og gera ótrúlega margt til að aðlaga það norsku samfélagi. Réttarhöldin yfir Breivik sýna líka reisn sem veikum manni er sýnd. Skoðanir Breiviks eru á skjön við flest það
sem hægt er að ímynda sér, en háttarlag hans lýsir líka veikindum á háu stigi. Gagnrýna má viðbúnað lögreglu, en harðar aðgerðir til að koma í veg fyrir
harmasögulega atburði geta líkað bitnað á íbúunum og skert frelsi hins almenna
borgara. Norðmenn hafa þurft áður að ganga í gegnum stór réttarhöld þar sem atburðarrásin
var á mörkum sturlunar. Í máli Hamsuns og Treholts  var vandfundið réttlætið og enginn sigurvegari, en samkenndin styrktist.
Þessi frétt segir ekkert um
ekna kílómetra hjá konunni en mikið um skýrslugerð til margra ára. Sá er hefur flesta ökutíma að baki án óhappa er bestur í akstri. Þeir eru margir hér á landi. Fyrir
tryggingafélög og samfélagið eru góðir ökumenn gulli betri. Það ætti að
verðlauna þá eins og gert er í Suður- Afríku. Fyrirmyndarökumenn eiga að vera
merktir á bílrúðum með stóru F og ökumenn á fyrsta og öðru ári með L. Í
Bretlandi er L merking algeng og ekkert athugavert við að vera lærlingur.
Lærlingsnafnið er að hverfa úr málinu og nemar eiga bara að vera í skóla? Hér
geta fagmenn á fyrsta ári tekið sama fyrir sína vinnu og menn með margra ára
starfsreynslu.
Annað merkilegt má lesa út úr
þessari frétt. Það eru um 10 sinnum fleiri teknir ölvaðir við akstur hér á landi, heldur
en í Suður- Afríku. Dauðsföll í umferðinni eru hinsvegar mun færri hér á landi.
Tölfræðin þarf þó ekki endilega að endurspegla öryggið í umferðinni.
Á vesturhimni
má sjá skærar reikistjörnur í marsmánuði. Júpíter og Venus  getur að líta í nær
beinni línu á vesturhimni þegar skyggni leyfir. Það hefur verið hálf bágborið í vestanáttinni á Suð- Vesturlandi. Stjörnuvefurinn
upplýsir okkur um lífið í umheiminum og sama gerir netblaðið. Okkur þykir þessi
upplýsingaheimur vera sjálfsagður en hann getur umturnast við óvæntar aðstæður. Netið er á mörgum sviðum að taka völdin og fyrr en seinna verður greitt stefgjald sem miðast við netnotkun. Sá sem finnur fyrstur aðgengilegt kerfi til þess verður væntanlega milljarðamæringur eða Jón Leifs á netöld.
Eftir tvo Kastljósþætti um fjármálaeftirlit
er maður engu nær um brottrekstur forstjóra þess. Handbendingar og tal
stjórnarformannsins um nær því ekki neitt eykur ekki traustið á stofnuninni.
Slælegt eftirlit fyrir hrun vinnst ekki upp með hártogunum um
óskeikulleika forstjóra þess. Kastljósið á besta tíma sjónvarpsins hefur meiri skyldur en ella um að vanda til efnis. Uppljóstranir og hvítskúringar í
leikstíll eru vafasamar. Ungæðisháttur stjórnar eftirlitsins og eitt
lögfræðiálitið ofan á annað verður dýrt skattgreiðendum í lokin.
Sérstæðar norðurljósamyndir frá Fáskrúðsfirði segja mikið um einstakt land.
Engin mannleg flugeldssýning kemst í hálfkvisti við ljósagang sem á uppruna sinn í sólgosum. Eldhnötturinn okkar er líka óútreiknanlegur og flekaskilin við landið eru ekki síður forvitnileg.
Á netsíðu Ómars Ragnarssonar er mynd af Eldvörpum og borholu við Grindavík.
Ef maður vill fara akandi að Eldvörpum við Rauðhól verður að fara í gegnum Illahraun, Skipstígshraun, Bræðrahraun og Sundvörðuhraun. Síðan er hægt að halda fótgangandi áfram að Rauðhól, gegnum Eldvarpahraun, að Sýrfellshrauni og loks um Klofningshraun vilji maður skoða þessi fyrirbæri. Stór hluti hrauna við Grindavík hafa komið úr Eldvörpum, gígaröðum og stömpum.
Eitthvað mikið hefur gengið þarna á sínum tíma en oft líða tíu aldir á milli eldgosahrina. Landverndunarsinnar vilja vernda svæðið að Reykjanestá en aðrir segja að virkjanir og jarðfræðiskoðun geti farið saman.
Merkilegt að ekkert útivistarfélag hafi pælt þennan akur. Vel er hægt að sjá fyrir sér áhugasama ferðamenn fara þarna á um hraunið á milli lóna . Ef virkjað, kemur þá heitt lón og rafmagn? Maðurinn er umbrotamikill rétt eins og flekasmiðurinn mikli, breytir því sem hann vill, hvenær sem hann telur það þjóna markmiðum sínum. Þá má spyrja hver ræður þessari för og hve lengi má bora.
Mestu undur lífsins eru aldrei fjarri. Þvílík gjöf náttúrunnar er ekki sjónin og að skynja alheiminn á stjörnubjartri nóttu. Venus og Júpíter ætla ég að séu skærust himinhnettir nú á vesturhimni. Í rafljósunum í Reykjavík sjást ekki vel aðrar stjörnur. Í kvöld er sá dagur sem áhrifa frá stóra sólgosinu gætir mest. Hvítur snjóstormur var á Reykjanesinu síðdegis í dag. Nú væri mikill upplifun að vera staddur við Reykjanesvita og upplifa samtímis glaðbeittan stjörnuhiminninn og brimrótið.
Þeir sem búa á Reykjavíkursvæðinu geta séð mikinn töfraheim í ljósaskiptunum í Heiðmörk og við Kaldársel.
Nú líður senn að jafndægri og stjörnubjörtum nóttum fækkar óðum. Við taka lengri dagar og um mitt sumar er enn einn töfraheim að líta. Ljósar miðsumarsnætur til fjalla, við hraunkant inn í dal eða út við sjó er dýrð sem þjóðir norðursins upplifa. Að sofna undir heiðskýrum himni við Berserkjahraun, í nábýli við rjúpu örn og  fálka er enn eitt undrið sem hægt er að upplifa.
Mörg smáríki hafa tekið upp dollara eða evru. Vegna þess að það er
ekki á færi smáríkja að halda utan um eigin mynt. Á netinu hafa kostir þess
verið tíundaðir lengi og vel. Mikið álag fylgir haldlausri krónu og vandamál
hennar tekur mestan tíma Alþingis. Nú þegar
stjórnmálmenn hafa frumkvæðið er von, en engin sátt er um evru í sjónmáli.
Kanada er í
mátulegri fjarðlægð og margt líkt með útflutningsgreinum. Samvinna á fleiri
sviðum gæti fylgt í kjölfarið. Námugreftri og olíuvinnslu ef menn vilja minnka
áherslu á virkjanir. Í leiðinni myndi vandi verðtryggingar leysast upp og
fjárfestingar myndu aukast. Aðalmálið er að líf íbúa myndi taka miklum stakkaskiptum
og átök minnka.
Í átakaheimi þar sem barist er um áhrif birtast sífellt nýjar stjörnur. Eiga sitt eigið líf á tímabundni rás. Ganga fyrir mátt auglýsinga og framtaks einstaklinga. Óskarinn er hluti af öflugri stjörnuvél sem hefur aðallega haldið á lofti framleiðslu frá Hollywood. Gaman verður því að sjá hvað í Listamanninum heillar Ameríku.
Á Eyjunni má sjá nýjustu myndböndin frá Ameríku og aðra mynd á stjörnuhimni. Þar má sjá Whitney Houston syngja á Super Bowl1991. Ung og glæsileg stjarna í blóma lífsins stígur fram á sviðið, óörugg en með rödd sem hrífur alla. Stolt og prýði Ameríku á íþróttaleikvelli þar sem hún sameinar hvíta og svarta. Ameríska fjölskyldan í sínu besta pússi, en í baksýn máttug hernaðarvél.
Á sömu netsíðu má sjá leikarann Kevin Costner 21 ári síðar kveðja Houston með hugljúfri röddu. Sjá stjörnu brenna út langt fyrir tímann í heimi álags og eiturlyfja. Leiksviðið höfum við séð oft áður í boði bestu leikritaskálda Ameríku. Hver man ekki eftir Arthur Miller og Marlyn Monreo eða leikverkinu Allir synir mínir.
Óvenjulegt er að frönsk mynd skíni jafn skært í Hollywood en kannski boðar það breytingar.
Smáþjóð kemst ekki langt nema nýta frumkraftinn, sköpunina. Álverið í Straumsvík er að komast á annað stig með verðmætum tækninýjungum. Íslenskir sprotar hafa þar lagt fram sinn skref ásamt dugmiklum forstjóra. Eitthvað vantar samt upp á að Háskólinn sé að útskrifa nemendur sem koma til með að eignast hlut í álfyrirtækjunum. Niðurlægingin var mikill þegar íslenska ríkið seldi hluti sína í Steinullarverksmiðunni, Sementverksmiðju og járnblendi á gjafaverði. Eða þegar það ákvað að rífa niður áburðarverksmiðjuna.
Háskólinn hafði menntað alla þá menn sem að því stóðu. Kannski væri ráð að skylda nemendur í viðskiptafræði og lögfræði til að vinna einhvern tíma á meginlandinu áður en þeir hefja störf hér á landi. Það er orðið of seinn þegar þeir eru búnir að vera forsætisráðherrar.
Tímabundin verðstöðvun með samráði allra á vinnumarkaði og ríkisstjórnar hefur gefist vel. Gengissig er ávísun á verðbólgu og agaleysi í fjármálum. Viðmælendur í þessari grein vita hvað klukkan slær eins og almenningur. Flestir þekkja einkennin og getuleysi stjórnvalda er það sama og oft áður. Við fljótum öll af feigðarósi með þessari stjórn án þess að fá nokkuð að gert til að stöðva verðbólgu. Aukin loðna, makríll, tug milljarða framkvæmdir í Straumsvík og í virkjunum koma fram í hagvaxtarspám. Góðæri er aðeins æskilegt ef almenningur fær ráðið við verðbólguna og verðtrygginguna sem hefur fylgt okkar smáu mynt.
Þrautseigja og þolinmæði
þessa unga athafnafólks er eftirtektarverð. Táknræn fyrir fólk í atvinnurekstri
og þá erfiðleika að vera hönnuðir í fámennu landi fjarri mörkuðum. Í stærri
löndum eins og í Noregi og ESB er búið að ryðja brautina. Upplýsingaflæði
gegnsætt og opinberir starfsmenn verða að standa sig. Hér eru höft og bankar á
brauðfótum. Viðtalið er ítarlegt og lofsvert.
Í gær var fyrrverandi ráðuneytisstjóri neglur og krossfestur. Mikils metinn opinber starfsmaður til margra ára. Bólubréfasafnari án félags. Nú á að sýna að kerfið tekur við sér. Dómurinn er skýr. Opinber starfsmaður á ekki að stunda bóluviðskipti á minnsta hlutabréfamarkaði heims. Martha Stewart sjónvarpsstjarna og kokkur með meiru fékk 5 mánaða dóm en íslenska dómskerfið gerir betur. Eimreiðarmaður og brautryðjandi á hlutabréfamarkaði, 2 ár.
Mátulegt á hann hrópar lýðurinn. „Fagnaðarefnið þegar einstaklingur fellur en kerfið blífur."  „Argasta bananalýðveldi bjargað." „Tímamót í réttarfarsögu eftir öll guðmundar og geirfinnsmálin.“
Gærdagurinn er ekki einungis sögulegur fyrir íslenska dómskerfið. Minnsta "peningastefnuvél" í heimi fær aflausn hjá Fitch-regluverkinu. Ruslflokknum aflétt stóð stórum stöfum. Gæðastimpillinn fundinn. Ísland í farabroddi undir vinstri stjórn.
"Á fullu stími út úr brimgarðinum." Út úr bóluhagkerfinu. Lifi makríllinn og AGS. Stórkostlegur sögulegur gærdagur, sem ber að fagna á ný í Hörpu.
Sjáið bara: Hagar hækka og hækka. En aðeins fyrir útvalda í lokuðu bóluhagkerfi sakleysingja.