Gott að vera vitur í útlöndum

Menn sem starfa í erlendu, vernduðu umhverfi eru ekki bestu mennirnir til að ráðleggja.

Sá siður að fá erlenda álitsgjafa til að styrkja sjálfsvitundina hefur ekki skilað árangri. Sagan sýnir að Íslendingar hafa ekki getað rekið banka án meiriháttar áfalla í meira en 100 ár. Menntakerfið hefur ekki skapað nægilega vitund um fjármálalæsi eða hvernig gæta skuli aflaðs fés. Strax eftir stríð var öllum stríðságóðanum eytt og höft viðhöfð tugi árum eftir á.

Bankar atvinnugreina komust lengst í bankarekstri en verkalýður og atvinnurekendur veittu stjórnmálmönnum ekki nægilegt aðhald til að hemja verðbólgu. Ísland hefur verið eins og Rússland að opna og loka á frjálsræði í peningamálum undangengina áratugi. Einn daginn er allt opið en þann næsta lokað. Bæði löndin eru strjálbýl og hafa ekki þroskað með sér fjármálvitund eða virt eignarréttinn eins og víða í Evrópu. 

Þorpsfíflin á Íslandi hafa sett sinn svip á mannlífið og gert marga mikla. Í útlöndum kunna þeir að hreiðra um sig í stofnunum. Að ráða við sjálfstæða og smæstu myntina er ofurverkefni hjá fámennri þjóð á útskeri. Að sameinast eða fá aðhald hjá öðru myntkerfi er engin goðgá. Kanadadollar, norsk króna, júan. Að tengja íslensku krónuna við annað myntkerfi hlýtur að vera raunhæfara en fara aftur fram á hengiflugið.


mbl.is „Ísland er þorpsfíflið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Geir Ágústsson

Heyr, heyr!

Síðan má spurja sig hvaða kappsmál það er að íslenska ríkið standi í peningaútgáfu yfir höfuð. Af hverju er það svona áríðandi? Er ríkiseinokun virkilega svona áríðandi hér? Og hvers vegna? Spurðu hvaða mann sem er á Íslandi sem fær marga erlenda ferðamenn í heimsókn og hann segir: "Íslenska krónan? Jú, jú ég sé hana alveg skjóta upp kollinum, en þrátt fyrir að fá miklar tekjur inn í allskonar gjaldmiðlum þá get ég samt keypt aðföng, borgað skatta, greitt mér arð, borgað húsaleigu af bæði verslunarrekstri mínum og eigin heimili, og verslað í Bónus."

Geir Ágústsson, 13.5.2015 kl. 07:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband