Í hvaða umboði starfar fréttastofan

Er það hlutverk ríkisfréttastofu að fylgjast með tímamætingu Alþingismanna? Væri ekki nær að skoða hverju menn afkasta fyrir land og þjóð. Hvað menn leggja að mörkum á eyjunni votu til að þar þrífist fjölbreytt mannlíf.

Obama forseti kom auga á að í Pútínríki vantaði frumkvæði og nýsköpun. Menn væru við sama heygarðshornið öld eftir öld. Aðallega snérist efnahagurinn um að selja olíu, gas og vopn. Skara að sinni köku til að ná áhrifum í löndum eins og Sýrlandi. Rússland mannar manndrápsvélar sem engum hlífa. Framkvæmt í samvinnu við einræðisstjórnir sem hafa svipuð tök á almenningi.

Fréttastofa ríkisfjölmiðils er notuð til að hafa áhrif á pólitíska umræðu. Ákveðnum aðilum í þjóðlífinu er miskunnarlaust úthýst, án þess að þeir nái að koma vörnum við. Skemmst er að minnast viku Brúnu eggjanna, þegar stórt landbúnaðarfyrirtæki var brotið niður. Aðallega með gömlu myndefni og ónógum samanburði.

Á fjórða degi Kastljóss var Mast forstjórinn spurður hvort hann ætlaði ekki að taka pokann sinn, hann væri kominn í blindgötu. Sá gamalreyndi svaraði um hæl að undir hans umsjá væru 6000 fyrirtæki, þar sem stöðugt væri unnið að endurbótum og auknum gæðum.

Fréttastofan virðist vinna í Pútínsanda þar sem menn fá að fjúka að óvörum. Yfir þrjátíuþúsund fyrirtækjum er þröngvað til að greiða Ríkisútvarpinu daglegt framlag. Engin spyr hvernig fréttastofan notar fjármagnið sem skiptir milljörðum. Menn eru í ofanálagt það meðvirkir og heilaþvegnir af tilbúnum æsifréttum að þeir greiða stofnuninni milljarða til að auglýsa.

Fólk út á landi á fáa kosti þegar kemur að fjölmiðlum, þannig eru forréttindi og yfirburðavald ríkisfyrirtækisins. Allt í umboði Alþingis sem sér ekkert athugavert við framvinduna.

 

 

 


mbl.is Segir RÚV glíma við þráhyggju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aztec

Illugi Gunnarsson hafði þrjú ár til að selja RÚV og losa Efstaleitið af þessari óværu. En hann aðhafðist ekkert.

Ég held að þú ættir ekki að hrósa Obama um of. Hann og Hillary höfðu planlagt stríð við Rússa, sem margir hafa kallað WWIII. Obama sakaði Putin um að hafa komið Trump til valda, þegar það var alfarið Hillary sjálfri, Obama og vini þeirra, óþverranum George Soros að kenna að hún tapaði. Þetta rugl er svo smitandi, að einn af vitleysingunum úr röðum þingmanna Labours í Bretlandi hefur kennt Putin um að hafa valdið Brexit. Ég sjálfur er alls ekki frá því að hraðasektin sem ég fékk um daginn hafi verið Putin að kenna, því að Rússarnir hökkuðu sig inn í hraðamælinn á bílnum mínum.

- Pétur D.

Aztec, 17.12.2016 kl. 22:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband