Rífandi gangur en ekkert flug.

Farsæll og dugnaðarlegur innanríkisráðherra. Yfirvegaður og góður til andsvara þótt hann hafi ekki verið lengi í embætti. Flokkurinn hefur ekki náð sér á strik eftir hremmingar síðastliðinn vetur. Allir stjórnmálaflokkar þarfnast eldhuga sem koma fram með nýjar lausnir og fylgja þeim fast eftir. Þeim sem gengur best eru launhæðnir og tvíræðnir. Fullir af samlíkingum og skopi.

Jóhönnu gekk ekki sérlega vel að hemja sína "ketti". Hún fær lof í lófa hjá þáttastjórnanda sem er að auglýsa þætti sína á RÚV. Hvar afrekin liggja kemur þá væntanlega fram. Bjarni Ben talaði um Gylfa kvígu þegar ég var strákur. Mér þótti það alltaf fyndið. Golda Meir fór gandreið um landið með ráðherranum. Rykið frá bílnum sást í kílómetra fjarlægð, líkt og ekið væri í eyðimörk. Þessar konur urðu fyrstar til að verða forsætisráðherrar.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki enn komist á flug eftir Hrun. Flest virðist vera að ganga upp hjá ríkisstjórn og veltuaukning í öllum greinum. Háir vextir og óvissa í kjaramálum dregur fylgið niður, þótt það sé Alþingis að leysa þau mál með bættri löggjöf. Borgarstjórnarflokkurinn óvinsæll og frumkvæðislaus.

 


mbl.is Greinir frá ákvörðuninni á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband