Sannkallað leikhús

Gríman í kvöld var há pólitísk í dansi og leik. Sorgarleikur og gleði. Baráttukona og stjarna kvöldsins var Edda Heiðrún Backmann, gleðigjafi sem hafði mikið að segja. Í ávarpi sem sonur hennar flutti komu fram skilaboð sem fáir munu gleyma. Leikhúsið og samfélagið þarf á leikritahöfundum og skapandi listamönnum að halda til að spegla nýja tíma, sagði þessi dáða leikkona. Þá brýndi hún skilaboð sem send hafa verið til Sameinuðu þjóðanna um að rannsóknir á taugakerfinu verði efldar.

Leiklistin er eins og börnin sígefandi. Börn elska leikhús en til þess að upplifa "lífið í Tjarnarbíó" þarf kynningu. Leikhúsferð í skóla til að leiklistin lifi af hraðar breytingar samfélagsins. Eftir opnun Þjóðleikhússins gátu flest börn farið á sýningar með skóla eða foreldrum. Fyrir það var leikhúsið sterkari menningarvaki alla síðustu öld.

Hið margverlaunaða og síunga Dúkkuheimili, áður Brúðu verður vonandi endurtekið í haust. Það er umhugsunarefni af hverju nýjar kynslóðir koma ekki með nýja Ibsena. Leikstjórinn frá Bergen og leikhússtjóri í Kristjaníu er sígildur höfundur í dag. Hversvegna ekki einn heimsfrægur frá Akranesi eða býr hann í Borgarnesi og kynnir sögubókmenntir? 


mbl.is Lítur á sjúkdóminn sem hlutverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband