Grínistinn og fulltrúalýðræðið

Viðtal Helga Seljan við Jón Gnarr grínistann og listamanninn var með ágætum, samtal sem hæfir skopmynd, klippt eða óklippt. Borgarstjóranum er auðsjáanlega meinilla við að leggja byrðar á alþýðufólk og hann ákveður að yfirgefa skútuna í tíma. Aðspurður vill hann ekki verða í forsetaframboði. Lélegur í veislum og hanastélsboðum.

Embættismenn eiga að hans mati að ganga um sjálfala í skóginum með skatta og gjalda krónurnar á bakinu, týna úr pokanum og dreifa í verkefni. Framkvæmdastjóri borgarinnar, borgarstjórinn á ekki að bera ábyrgð á fjárhirslum borgarinnar. Öllu er vel stjórnað og gríðarlegur árangur við að koma Orkuveitunni á réttan kjöl. Það er rétt svo langt sem það nær. Aðkoma Besta flokksins var slæm.

Forveri hans keypti húskumbalda á ofurverði við Laugaveg og nú vill Minjavernd selja uppgerðar torfur til að fá krónur í kassann. En eitthvað er bogið þegar leikskólabyggingar kosta um eina milljón króna hver fermetri. Sama gildir um tengingu borholu Hverahlíðar við Hellisheiðavirkjun, þar á hver metri af rörum að kosta um 500 þúsund.

Maður sem vill aftur verða með tvö þúsund á klukkutímann sem grínisti veit hvað klukkan slær. Kveður í auðmýkt og með 40% fylgi.


mbl.is Björt framtíð fengi sex í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband