Tækifæri ef stjórnvöld akta

 

Ungir hagfræðingar og spákaupmenn í Ameríku eiga bróðurpartinn í því hruni sem varð á fjármálamarkaði. Ríkisstyrkt kerfi andskotans oft kennt við jöfnuð. Reglulega heyrast raddir þeirra í Silfrinu eða á síðum dagblaðanna. Jón Steinsson hagfræðingur og kennari við Columbíu háskóla sendir okkur reglulega pistla um úrbætur gegn verðbólgu og ráðleggingar til Seðlabankamanna. Í Fréttablaðinu í dag brýnir hann fyrir Seðlabanka að hækka "stýrivexti" um 2.5% til að vinna á "sjálfsprottni verðbólgu". Augljóst er hann býr ekki í landinu og veit ekki hvaða afleiðingar það hefur á hag heimila og fyrirtækja á næstu misserum. Veit hann að meiri hluti fyrirtækja á í erfileikum og eru í stoðkerfi banka.

Hagfræðingar vitna gjarnan í hagtölur og tala um minnkandi atvinnuleysi. Atvinnuleysið er eitt blekkingarstigið sem kemur hagfræðingum út af sporinu. Á vormánuðum eykst framkvæmdahugur og ýmislegt fer í gang sem ekki á við aðra ársfjórðunga, því minnkar atvinnuleysi nú um 1.2%. Strandveiði hefst og óvenjumikill afli hefur borist á land í byrjun árs. Þá er Vinnumálastofa að fara á stað með atvinnuátak sem kostað er af atvinnurekendum. Veit Jón um að atvinnurekendur sem bjóða upp á tímabundin störf fá ekki starfskrafta til vinnu nema að leita út fyrir landsteina.

Verðbólga getur aldrei verið sjálfsprottin. Hún á sínar orsakir og jarðveg. Ríkisstjórnin byrjaði árið með skattahækkunum, meðal annars á bensín. Síðan tók Seðlabankinn ákvörðun um tímabundna gengislækkun, gengissig sem nú er að ganga til baka. Sem afleiðing hækkaði verðlag og ríkissjóður fékk meira í kassann af veltisköttum. Allt þetta hefðu menn getað séð fyrir væri hugur á að horfa í baksýnisspegilinn. Lítill áhugi virðist hjá stjórnvöldum á að halda niðri verðbólgu og standa fyrir samráði gegn henni með lífeyrissjóðum, launafólki og atvinnurekendum. Þá er lítill áhugi á að tengjast strax öðrum gjaldmiðli vegna þess að það kallar á víðtækt aðhald. 

Opnun Bauhaus í dag, byggingakeðju með uppruna í lágvaxtalandinu Sviss gæti stuðlað að lækkun verðbólgu. Tækifærin til að ná tökum á verðbólgu eru mörg en lágir vextir eru lykillatrið, þar hefur Bauhaus forskot. Ef vextir eiga eftir að hækka meir á innlendum fyrirtækjum mun forhlaup erlenda fyrirtækja aukast og heimamenn verða meiri áhorfendur og þiggjendur

 

 


mbl.is Allt fullt hjá Bauhaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband