30.3.2017 | 18:23
Sterkasti gjaldmiðillinn og hæstu ferðamannaskattarnir
Á næstu dögum mun koma í ljós hvort skattaáform ríkisstjórnar gangi eftir. Hætt er við að landsbyggðin láti í sér heyra eins og Ásberg áréttar í greininni. Samdráttur í greininni kemur verst við sprota út á landi. Þá munu tekjur af umferð minnka og í hliðargreinum. Fyrirhugaðar umbætur í vegamálum og vegtollar verða sjálfskaparvíti þegar færri eru til að greiða.
Viljum við að fjárfestingar í ferðaþjónustu skili sér er ekki vænlegt að hækka gjaldtöku fram yfir það sem boðað er með vegagjöldum. Margfeldisáhrifin á 100% hækkun skatts mun hafa víðtæk áhrif og draga úr tekjum ríkisins. Ferðaþjónustan greiðir skatt af hagnaði eins og aðrir, ef hann dregst saman erum við engu bætt.
Hætt er við að Sjálfstæðisflokkurinn "skjóti" sig í fótinn ef hann ætlar að rugga bátnum fram yfir það sem greinin þolir. Fyrrverandi ferðamálaráðherra gekk ekki of vel með passann sinn. Ef menn vilja skapa landslag fyrir íslenskan Trump mun hann koma fyrr eða síðar, óhefðbundinn og með nýjar áherslur.
Það er einkennilegt þegar menn eru að hrósa krónunni fyrir að vera sterkasti gjaldmiðilinn og eigna sér "heiðurinn" af styrkingu hennar. Allir vita hve fallvölt hún getur verið, auk þess sem hún kallar á hæstu vexti.
Við verðum að stoppa þetta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.3.2017 | 07:28
Á Sjálfstæðisflokkurinn að leiða skattahækkanir?
Nóg er af kollsteypunum í gengis og peningamálum þótt ekki bætist við hækkaður virðisaukaskattur á stærstu útflutningsgreininni. Úr 11% í 22 %. 100% hækkun? Það er eins og menn séu ekki á sömu plánetunni. Ísland er með hæstu skattlöndum á byggðu bóli. Ríkisvaldið óseðjanlegt og kröfum til þess linnir ekki.
Nýlega reifaði samgöngumálaráðherra þeirri hugmynd að leggja á vegatolla á mestu umferðaæðum. Verkefnið er risavaxið, en ekki óframkvæmanlegt. Maður skyldi halda að það væri ærið verkefni að tryggja stöðugleika í gengismálum. Taka upp annan gjaldmiðill, en ekki geyma það þangað til Seðlabankastjóri hættir.
Boðar lækkun virðisaukaskatts | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggfærslur 30. mars 2017
Um bloggið
sigurfang.blog.is
Bloggvinir
- hekla
- sighar
- thjodarskutan
- esgesg
- tilveran-i-esb
- rabelai
- krisjons
- stinajohanns
- kreppan
- jonvalurjensson
- jennystefania
- elinerna
- photo
- vulkan
- kermit
- ipanama
- svavaralfred
- robertb
- olafurjonsson
- josira
- bookiceland
- kristjan9
- shv
- aslaugfridriks
- stjornuskodun
- don
- arkimedes
- einarborgari
- apalsson
- jobbi1
- postdoc
- geiragustsson
Myndaalbúm
Af mbl.is
Viðskipti
- Lánshæfiseinkunnir ríkisins hækka
- Bústoð opnar í Garðabæ
- Gjaldþrotabeiðni á sögufrægt flugfélag
- Beint: Samtaka um grænar lausnir
- Hjalti nýr framkvæmdastjóri Datera
- Mikilvægt að úrræði séu endurskoðuð
- Meiri fyrirsjáanleiki nauðsynlegur
- Örugg framkoma skilar árangri
- Fólk verði að hætta ásökunum
- Stefnir í fyrstu vaxtalækkun í fjögur ár