Merkilegt metár. Alþingi óstarfhæft vegna reiði

Magnið af mjólk er álíka og hvert mannsbarn renni niður yfir einum lítra af kálfamjólk á hverjum degi. Ferðamenn meðtaldir. Fulltrúar bænda hafa samið um meiri innflutning af öðrum landbúnaðarvörum frá Evrópu til að getað selt meira skyr. Er það ávinningur?

Margir bændur halda því fram að íslenska kúakynið sé ekki gert fyrir iðnaðarframleiðslu úr kúamjólk. Líftími kúa er aðeins örfá ár vegna framleiðsluálags bóndans. Hvernig geta bændur byggt upp ný fjós og framleiðslu sem ber vexti sem eru margfalt hærri en hjá sambærilegum iðnaði í Evrópu?

Árið 2016 er sérstætt um margt fleira. Stjórnmálflokkar hafa byggt upp innra með sér ofurkröfur sem ekki ganga upp. Innri reiði kemur í veg fyrir að Alþingi sé starfhæft. Ný fjárlög eru með meiri hækkunum en nokkru sinni fyrr.

mbl.is Metár í framleiðslu mjólkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ægishjálmur ríkisútvarpsins

Í Kastljósyfirliti ársins í gærkvöldi var aðaláherslan lög á að sýna fyrirsátuþáttinn með sænsku sjónvarpsvinunum. Auk þess var afsagnardagur Sigmundar tíundaður á myndfleti. Einelti sjónvarp "allra landsmanna" á vinsælasta stjórnmálamann ársins á Útvarpi sögu heldur því áfram.

Á meðan Stasiástand ríkir áfram á stærsta fjölmiðlinum verður erfitt fyrir Framsókn að ná vopnum sínum. Slíkur er Ægishjálmur Ríkisútvarpsins og áhrifavald út á landi þar sem Framsóknarþingmenn sækja helst fylgi sitt. Flestir treysta á fréttir útvarpsins af færð og veðri. Annar boðskapur fylgir í kjölfarið í nafni hins gamla hlutleysisslagorðs.

Það einkennilega er að veðurfréttir sjónvarps eru í skötulíki miðað við hvað veður er afdrifaríkur þáttur fyrir líf allra landsmanna. Í aðalfréttatíma sjónvarps klukkan sjö koma veðurfréttir á eftir fréttum, íþróttum og auglýsingum. Næst á undan Kastljósi sem á að sýna aðalsprengjukraft ríkisútvarps í fréttanálgun.  

Í Galdrabók er Ægishjálmur; Helm of awe (or helm ofterror); to induce fear and to protect ...

mbl.is Fer fram á afsökunarbeiðni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í Þyrnirósardal. Gjaldið eða gjaldeyriseftirlitið?

Bók Björns J Bragasonar sagnfræðings, Gjaldeyriseftirlitið er lýsing á innliti í Seðlabankann. Óspennandi bókarheiti verður að "reyfarakenndri" lýsingu á eftirliti með krónunni. Hluti af "Erfiðleikasögu smæstu sjálfstæðu myntar í heimi."

Sagnfræðingurinn kemur víða við, fer inn í Vogaskóla þar sem unglingar, nú þjóðkunnugir voru heillaðir af uppbyggingu sósíalismans og byltingamanninum Leon Trotskíj. Áhugaverð lesning, eitt af mörgum þjóðmálaritum Almenna Bókafélagsins á nýrri öld.

Þegar aðaláhyggjuefni Seðlabankans er styrking krónunnar vegna aukningu ferðamanna er eitthvað að. Fimmára rannsókn á einu stærsta og best rekna útflutningsfyrirtæki landsins út af yfirfærslu á nokkrum norskum krónum segir sína sögu. 

Vandamálið er ekki aðeins smæð íslensku krónunnar. Margir áhrifamenn líta á hana sem heilaga kú og blanda sjálfstæði landsins inn í umræðuna. Umræðuvettvangur sem fáir þora að klífa.

Til að fela vandamálin í kringum íslensku krónuna eru fengnir vinstri spekimenn og örlaganornir frá Noregi til að magna upp eftirlit og eftirfylgni. Feluleikur og örlagasaga.

mbl.is Mál Kaldbaks fellt niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkið ofverndar. Engin hvati til að búa til nýjar afurðir.

Sauðfjárbændur hafa aldrei komist undan ríkisvernd. Vara frá býli er nýtilkomin, en ekki þróað markaðsátak. Einstaka bændur hafa vindþurrkað og reykt lambakjöt, en vantar stuðning. Fjallalambið er einstök vara. Með áratuga ríkisstuðningi hefur frumkvæði bænda verið drepið í dróma. 

Á Spáni er lambakjöt í tapasréttum ljúfmeti, t.d. kótelettur smáskornar. Jamón, reykt svínakjöt er sælgæti og borðað hrátt, saltað og kryddað, hágæða kjötvara. Um hundrað gröm kosta tugi evra komin á diskinn. 

Ferðamenn eru sólgnir í hágæðavöru og vilja borga fyrir hana. Ef 50-100 þúsund ferðamenn tækju með sér heim þurrkað, léttreykt læri yrði lambakjötsfjallið mun minna. Útflutningur og markaðsátak á lambakjöti erlendis hefur alltaf endað í blindgötu.

Bændur eiga sjálfir að taka alla ábyrgð á framleiðslunni. Niðurgreiðslur veikja bændastéttina, sem þarf á að halda sjálfshjálpar stuðningi frá öllum landsmönnum.

mbl.is „Verð á sauðfjárafurðum má ekki lækka“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn á hækjum og Sigmundur í útlegð eftir árásir fréttastofu

Fjárlögin eru stærsta áskorun bráðabirgðastjórnar Sigurðar Inga. Koma þarf böndum á Kjararáð? Setja gengið fast með einhverjum hætti. Gera Seðlabanka kleift að stoppa flökt krónunnar. Norðmenn gerðu það með olíusjóði. Sviss smáríki, en þó 25 sinnum fjölmennara en Ísland hefur gert svissneska frankann að stórveldi. 

Til að Framsóknarflokkurinn geti komið að minnihlutastjórn þarf hann á stuðningi allar þingmanna sinna. Hlutverk formanns er að ná sáttumAð leita í smiðju til Sigmundar Davíðs er ekki vitlaus hugmynd. Manns sem hefur yfirsýn, þingmanns sem var strax á móti Icesave-samningum og gat stjórnað útgöngu  hrægamma. 

Minnihlutastjórnir eru algengar á Norðurlöndum. Hafa aukið samningatæknina, þar er það skylda að ná samningum. Hér þarf að koma böndum á Ríkisútvarpið sem er skoðanamyndandi. Ræður um 60% af fjölmiðlaveldi landsins. Fréttamenn hafa tekið sér völd í krafti stærðar og breytt pólitískum hlutföllum. 

Alþingi er sundraður vinnustaður og ekki fyrir alla að vera með stimpilklukku ríkissjónvarpsins yfir höfði sér. Fréttamenn Ríkisútvarps líta á Alþingi sem leikskóla þar sem auðvelt sé að hafa áhrif á framgang mála. ( Þing Póllands á við svipaðan vanda að stríða.)

Sjá:

RÚV býr til fréttir en ekkert réttlæti: Framsókn og Samherji

mbl.is Hefði gengið betur með Framsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í hvaða umboði starfar fréttastofan

Er það hlutverk ríkisfréttastofu að fylgjast með tímamætingu Alþingismanna? Væri ekki nær að skoða hverju menn afkasta fyrir land og þjóð. Hvað menn leggja að mörkum á eyjunni votu til að þar þrífist fjölbreytt mannlíf.

Obama forseti kom auga á að í Pútínríki vantaði frumkvæði og nýsköpun. Menn væru við sama heygarðshornið öld eftir öld. Aðallega snérist efnahagurinn um að selja olíu, gas og vopn. Skara að sinni köku til að ná áhrifum í löndum eins og Sýrlandi. Rússland mannar manndrápsvélar sem engum hlífa. Framkvæmt í samvinnu við einræðisstjórnir sem hafa svipuð tök á almenningi.

Fréttastofa ríkisfjölmiðils er notuð til að hafa áhrif á pólitíska umræðu. Ákveðnum aðilum í þjóðlífinu er miskunnarlaust úthýst, án þess að þeir nái að koma vörnum við. Skemmst er að minnast viku Brúnu eggjanna, þegar stórt landbúnaðarfyrirtæki var brotið niður. Aðallega með gömlu myndefni og ónógum samanburði.

Á fjórða degi Kastljóss var Mast forstjórinn spurður hvort hann ætlaði ekki að taka pokann sinn, hann væri kominn í blindgötu. Sá gamalreyndi svaraði um hæl að undir hans umsjá væru 6000 fyrirtæki, þar sem stöðugt væri unnið að endurbótum og auknum gæðum.

Fréttastofan virðist vinna í Pútínsanda þar sem menn fá að fjúka að óvörum. Yfir þrjátíuþúsund fyrirtækjum er þröngvað til að greiða Ríkisútvarpinu daglegt framlag. Engin spyr hvernig fréttastofan notar fjármagnið sem skiptir milljörðum. Menn eru í ofanálagt það meðvirkir og heilaþvegnir af tilbúnum æsifréttum að þeir greiða stofnuninni milljarða til að auglýsa.

Fólk út á landi á fáa kosti þegar kemur að fjölmiðlum, þannig eru forréttindi og yfirburðavald ríkisfyrirtækisins. Allt í umboði Alþingis sem sér ekkert athugavert við framvinduna.

mbl.is Segir RÚV glíma við þráhyggju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í hvaða umboði starfar fréttastofan?

mbl.is „Voðaleg reiði er þetta í Ríkisútvarpinu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Heilsa" Framsóknarflokksins áhyggjuefni hjá RÚV?

Fréttamaður RÚV fjallaði ýtarlega í hádegisfréttum um Framsóknarflokkinn. Meðal annars var fenginn í viðtal óþekktur, fróður Guðmundur til að úttala sig um samskiptamál innan flokksins. Í framhaldi kom ákveðinn spuni um "heilsu" flokksins. Hvort hann væri stjórntækur?

Núverandi formaður taldi að betra væri að hafa fyrrverandi forsætisráðherra á 100 ára afmælishátíð í Þjóðleikhúsinu. Fyrst fyrrverandi formaður væri fyrir norðan yrði svo að vera. 

Í áratugi höfum við trúað því að "okkar allra" sé sá hinn rétti hlutlausi fjölmiðill sem á að segja okkur hvað er mikilvægast í innviðum samfélagsins. Væntanlega fáum við nánari fréttir af samkomunni og hverjir sitja á fremsta bekk í kvöldfréttum RÚV.

Páll Vilhjálmsson bloggar um fjölmiðlavandann:

//pallvil.blog.is/blog/pall_vilhjalmsson/entry/2186738/

mbl.is Sigmundur Davíð í „samráð við RÚV“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fall er fararheill. "Sigmundur Davíð er rétt að byrja" sagði faðir hans

Blágrænu og gráu flokkarnir fóru í kosningar með miklar væntingar. Höfðu gert sér háar hugmyndir um að kjósendur myndu gleypa hráar hugmyndir þeirra um skattahækkanir á mesta velmegunarskeiði eftirstríðsáranna. Kastljós ríkisútvarps hóf leikinn með undirspili frá sænskum vinum.

Hér væri vondur forsætisráðherra sem sæti að svikráðum við þjóð sína. Einungis þyrfti að víkja honum úr vegi og þá gætu hinir blágrænu tekið við og mótað draumalandið. Hann stendur eftir keikur og heldur upp á 100 ára afmæli flokksins í sínu kjördæmi. Flautuliðið hefur yfirgefið sviðið. Aðeins Shakespeare gæti gert betur. Öðrum þætti er lokið og framhaldið óráðið.

Sigmundur virðist glöggur á stóru málin og hefur með Sjálfstæðisflokknum gert góða hluti sem speglast í betri hagvexti. Hefur pólitíska yfirsýn sem fáir hafa. Hvort kosningar í vor breyta stöðunni er ekki gefið. Hér er sama að gerast og á meginlandinu. Margir smáflokkar verða að getað náð saman með auknu lýðræði og stjórnvisku. 

Nýútkomin bók Þór Saari hagfræðings um Alþingi Íslendinga gefur ekki mikla von um að lýðveldið Ísland verði stjórnhæft á næstunni.

mbl.is „Dómadagsvitleysa“ að kjósa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flýja hörmungar stríðsins og rússneska íhlutun

Afganistar og Sýrlendingar eru þær þjóðir sem hafa þjáðst mest undan erlendri íhlutun síðust árin. Flóttamannabörn frá stríðsþjáðum löndum sem fæðast á Íslandi ættu að hafa meiri rétt en margur annar.

Noregur hefur tekið á móti hundruðum flóttamanna frá Afganistan og veita 3 milljarða aðstoð til þeirra á árinu 2016. Hingað hafa komið aðeins örfáir. Yfirleitt er þetta duglegt og sómafólk.

Hörmungarnar í Sýrlandi ætla engan enda að taka og sýnir hvað samtakamáttur Sameinuðu þjóðanna er lítill þegar á reynir. Stórveldin hafa mótað sína eigin hentisemi og beita neitunarvaldi.  

mbl.is Drengur fæddist Ahmadi-fjölskyldunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Des. 2016
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Af mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband