7.1.2017 | 10:47
Grundvallarstef leiðtoga í Bandaríkjunum
Trump leggur áherslu á að hafa svigrúm til breytinga. Flestir embættismenn í áhrifastörfum hjá Obama stjórninni víkja fyrir nýjum hliðhollum Trump mönnum og stefnu hans. Styrkir stjórnina í að gera umbætur fyrir litla manninn sem treystir á að halda atvinnu og áunnum launum.
Hér eru gömlu embættismennirnir ekki færðir til í áhrifamiklum embættum við stjórnarskipti. Oft hafa þeir gert ótrúleg mistök, en virðast ósnertanlegir. Veikir nýja stjórn sem vill ná fram kerfisbreytingum.
Einkaframtakið og frjálsræðið í USA hefur lyft grettistaki í Bandaríkjunum. Flugferðir WOW til ýmsa borga í Bandaríkjunum eru táknrænar fyrir hve frjáls fyrirtæki geta áorkað þar sem ekki eru hindranir.
Frú Obama; "lagði meðal annars áherslu á heilbrigt líferni, menntun stúlkna og hagsmuni fjölskyldna hermanna. En mest áhrif hafði hún sem fyrirmynd fólks sem tilheyrir minnihlutahópum"
Konan er glæsilegur fulltrúi og mikill ræðumaður. Enn og aftur sýnir hún dirfsku og áræði í kveðjuorðum: Verið ekki hrædd, verið einbeitt, verið staðráðin, verið kraftmikil... sýnið gott fordæmi, í gegnum von, aldrei ótta.
Vernda þarf og viðhalda frelsinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2017 | 12:41
Áramótasprengingar á RÚV. Trumpssnild
Einn ástsælasti og skemmtilegasti veðurfræðingurinn hjá RÚV, hélt því fram í kvöldfréttum að Pekingfólkið ylli hlýnun á Norðurhveli. Kolareyksmyndandi iðnaður í Norður-Kína væri blóraböggullinn. Kolaryk frá 500 milljónum manna, 7% af íbúum jarðarinnar. Hlýnun sem fór upp um 0.3 hitastig síðust mánuðum ársins 2016. http://www.ruv.is/frett/hvatti-til-snidgongu-a-vorum-fra-kina
Kolaryksmyndun og mikil framleiðsla í Kína hefur farið fram um áratugaskeið. Engin umtalsverð aukning varð í lok ársins 2016. Sama gildir um rykmyndun frá Betlandi, Sovétríkjum, Austur-Evrópu og Kína. Kolaframleiðslu lauk í Bretlandi fyrir síðustu jól, en vinnsla hafði verið í lágmarki . Flugeldaskot í Reykjavík um áramót leiddu til svifsryksmengunar á Skólavörðuholti, þegar mælingatæki fóru í botn. Íslendingar eru það þjóðarbrot sem mengar mest á hvern íbúa segja fræðingar. Það hefur ekki farið hátt um þann þátt í fréttum. Heldur er reynt að trompa Trump.
Veðurfræðingurinn tók fram að þetta væri ekki sagt til að hallmæla kínverskri þjóð? Þannig væru hlutirnir einfaldlega. Hitatölurnar eru fengnar fá Bretlandi. Vísindasamfélagið frá París er samhljóma. Máttur endurtekninganna.
Ísland varð byggilegt vegna hlýnunar á víkingatímanum en Grænland óbyggilegt þegar kólnaði á miðöldum.
Mengun langt yfir heilsuverndarmörkum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 3.1.2017 kl. 08:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
sigurfang.blog.is
Bloggvinir
- hekla
- sighar
- thjodarskutan
- esgesg
- tilveran-i-esb
- rabelai
- krisjons
- stinajohanns
- kreppan
- jonvalurjensson
- jennystefania
- elinerna
- photo
- vulkan
- kermit
- ipanama
- svavaralfred
- robertb
- olafurjonsson
- josira
- bookiceland
- kristjan9
- shv
- aslaugfridriks
- stjornuskodun
- don
- arkimedes
- einarborgari
- apalsson
- jobbi1
- postdoc
- geiragustsson