13.2.2022 | 15:33
Er sameiginlegra aðgerða að vænta hjá verkalýðsfélögum og ríkisstjórn?
Faraldurinn hefur sett sitt mark á atvinnulífið og nú þegar stærsti atvinnuvegurinn er að koma undan feldi eru enn blikur á lofti. Verðbólga er í kortunum og þeir sem gætu átt erfiðast að fóta sig í kvikusjóð hennar eru þeir sem tóku lán á tiltölulega lágum vöxtum. Vextir á íbúðamarkað hjá þeim sem taka sín fyrstu íbúðalán eru allt að tvöfalt hærri en á hinum Norðurlöndunum og nær engin verðbólguhækkun. Hversvegna stjórnvöld með samvinnu við verkalýðsfélögin hafa ekki myndað sameiginlega stefnu til að vinna bug á innlendri verðbólgu er með öllu óskiljanlegt. Ætti að vera sameiginlegt hagstjórnarmál.
Bæjarfélög hafa einnig áhrif á verðbólguþróunina, geta aukið kostnað íbúðakaupanda með hækkuðum grunnkostnaði, lóðaverði og vísitöluáhrifum. Ríkisbankar leiða stefnuna í vaxtamálum og þjóna fyrst og fremst stefnu ríkissjóð sem á stærsta hluta þeirra. Hér er margt falið sem er þó augljóst. Stuðningslán til fyrirtækja í faraldrinum fyrir ári bera árlega 8-9% kostnað sem ekki er hafður uppi á yfirborðinu. Þessi sömu lán áttu að vera þau hagstæðustu á markaðinum fyrir einu ári?
Nú segjast talsmenn ríkisstjórnar ekki sjá neina váboða í kortunum. Formaður VR sér hins vegar eru veður blikur í loftunum og ferðaþjónustan sér snjóþekjuna hlaðast upp. Á einu ári hafa orðið allt að 20% hækkanir á launakostnaði og nú þegar lengir dag er hækkun krónunnar að nálgast 5 prósentustig sem ætti að lækka vöruverð sem á erlendri vörukörfu.
Sú gengisbreyting Seðlabanka deyfir og slær á ótta, en er ekki varanleg lausn, frekar en aðrar misgóðar aðgerðir sem við þekkjum frá fyrri tíma. Íbúðalántakandi getur verið með 50 milljónkróna lán á bakinu þarf að herða róðurinn og greiða yfir 500 þúsund á mánuði á í afborganir og hærri vexti. Fyrirtæki með innlend lán greiða venjulega meira, yfir 600 þúsund. Unga fólkið, harðduglega sér þetta og er uggandi. Forystumenn í ferðaiðnaði sjá snjóhengjuna hækka, en varla ný forysta ASÍ? Launahækkanir eins og gerðar hér áður fyrr skila venjulega skammtíma árangri, það sjá flestir en samt sem áður gerist ekkert varanlegt í hagstjórninni og á vinnumarkaði. Ríkisstjórninni er vorkunn, hún hefur staðið í ströngu í faraldrinum. Hennar er heldur ekki að laga allt. Aðilar þurfa að semja og væntanlega bíður ríkistjórnin eftir frekari viðbrögðum. Sterk staða hennar varir venjulega lengi ef misvísandi stefnumið eru í kortunum.
![]() |
Áttar sig ekki á eitruðum kúltúr |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
sigurfang.blog.is
Bloggvinir
-
hekla
-
sighar
-
thjodarskutan
-
esgesg
-
tilveran-i-esb
-
rabelai
-
krisjons
-
stinajohanns
-
kreppan
-
jonvalurjensson
-
jennystefania
-
elinerna
-
photo
-
vulkan
-
kermit
-
ipanama
-
svavaralfred
-
robertb
-
olafurjonsson
-
josira
-
bookiceland
-
kristjan9
-
shv
-
aslaugfridriks
-
stjornuskodun
-
don
-
arkimedes
-
einarborgari
-
apalsson
-
jobbi1
-
postdoc
-
geiragustsson
Athugasemdir
Hvað áttu við með "nær engin verðbólguhækkun"?
Guðmundur Ásgeirsson, 13.2.2022 kl. 16:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.