Gjörningaveður, sýnd veiði en ekki gefin

Frá því kosningum lauk hafa pólitískar stórhríðir gengið yfir. Svikalýðræðið með áratuga atkvæðamisvægi afhjúpað nú sem aldrei fyrr. Öllum á óvörum birtist þingmaður miðjuflokksins eins og nýkominn af fjalli, alsnjóaður af baktali og misyndi að eigin sögn. Stuðningsmenn sem höfðu staðið í kosningasmölun um allt Suðurland eru enn ruglaðir eftir gjörninganótt kosninga sem og fleiri Vökumenn sem höfðu ekki búist við að ókrýndir birtust í þingflokknum.

Ekki nóg með að stofnanir hafa lagt sig fram um að auka bjartsýni í furðuveröld alþingismanna heldur hafa stórskyttur blaðanna lagst á eitt með að draga menn upp úr þunglyndinu. Fyrirsagnir um milljón tonna loðnukvóta á að gefa 4-6% aukið fé í þjóðarkassann. Fasteignaverð hefur og rokið upp um 14% í kjölfar hjálparstarfs reiknimanna. Einhuga um að bjarga einstökum sveitafélögunum frá gjaldþroti?

Hagstofa - Þjóðskrá sem heyrir undir forsætisráðuneytið fer trúlega eftir vísindaútreikningum, en það vekur umhugsun að stórfrétt um loðnukvóta birtast á sama tíma og viðræður um skipan næstu ríkisstjórnar eru að hefjast. Hafrannsóknir við Grænlandsstrendur þar sem farið er yfir sama hafsvæðið aftur og aftur? Hvar er hlutur Grænlendinga í loðnukvótanum og skyldu þeir getað komið inn í íslenska lögsögu og hafið "rallý" rannsóknarskipa til að mæla loðnukvóta sem þeir vilja veiða?

Sagt var að í eina tíð að vinnuþjakaðir togarasjómenn eyddu aflafé í ómynnisástandi í tveggja daga innilegu. Var allt talið réttlætanlegt til að koma þeim ómeðvitað á galeiðuna aftur áður en af þeim raknaði víman.

Eftir sýnda en ekki gefna veiði kemur svo enn einn bjargvætturinn, rafíþróttir sem á að bjarga kassanum í allsherjar gloríuveislu í Laugardagshöll eftir að boltamenn hafa verið sendir í frí. 


mbl.is Vita ekki hvort Erna fylgi Birgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband