20.12.2020 | 19:10
Dögun sunnan Tvíbolla og sólris suðvestan við Hvirfill
Á morgun tekur dag að lengja og spáð er heiðríkju á Reykjavíkursvæðinu snemma morguns. Ef til vill tækifæri til að sjá Satúrnus og Júpíter saman lágt á himni. Allavega möguleiki að sjá gasstjörnurnar suðvestan Lönguhlíðar og Tvíbolla og aðeins 3°yfir sjóndeildarhring eins og segir í fréttinni? Sagt er að Betlehemsstjarnan hafi orðið til hátt á lofti á dögum fæðingar Jesúsbarnsins þegar sjónarhorn stjarnanna nálgaðist.
Í morgun var mikill litadýrð og ægifagur að líta sunnan við Vífilstaðahlíð. Mosagrónir hraunsteinar með hvítum blæð og morgunroði í suðri setur sterk litbrigði á umhverfið sem er girt stafafuru og greni. Þegar leið að hádegi sem er talsvert á undan sóltíma jókst birtan sem kom í gegnum ský og heiðríkju. Skýjahnoðrar suðvestan við Miðbolla gáfu til kynna að sólin myndist birtast ofan við Syðstubolla. Raunin var sú að hún kom upp vestan við Hvirfill, 621m þegar klukkan var langt gengin í eitt ( á nýjum kortum Kistufell 527m ). Sólin nær hápunkti ofan Lönguhlíðar og er þá eins og lítil glóandi fingurbjörg, en enn minni við fyrstu sýn.
Margt er að breytast eins og áhersla á staðarnöfn á kortum sem hafa gilt um aldir. Nöfnum sem draga athyglina að atvinnuháttum og orðgnótt fyrri tíða manna. Sólrík morgunganga gefur gull í mund eins og orðtækið segir. Meiri sól hér en margir aðrir Norðurbúar hafa fengið í desember. Í Danmörk var lítill um sól og meir um rigningu en oft áður. Í Suður-Noregi, þungbúið. 17 stiga hiti á föstudag. Þótt ekki sé heitt þessa dagana er lengri sólargangur alltaf jafn velkominn.
Athygli vekur að bækur hafa verið skrifaðar í Svíþjóð um Betlehemstjörnuna og á Spáni er fyrirbærið þekkt þegar sjónarhorn beggja stjarnanna nálgast hátt á lofti. Við Miðjaðrahaf er drungi á veturna og allra veðra von í Eyjahafi. Íbúar þar hafa orðið jafn fegnir lengingu sólarstunda og hinir sem bjuggu norðarlega með töfra heimskautaveðurs.
![]() |
Júpíter og Satúrnus þétt saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
sigurfang.blog.is
Bloggvinir
-
hekla
-
sighar
-
thjodarskutan
-
esgesg
-
tilveran-i-esb
-
rabelai
-
krisjons
-
stinajohanns
-
kreppan
-
jonvalurjensson
-
jennystefania
-
elinerna
-
photo
-
vulkan
-
kermit
-
ipanama
-
svavaralfred
-
robertb
-
olafurjonsson
-
josira
-
bookiceland
-
kristjan9
-
shv
-
aslaugfridriks
-
stjornuskodun
-
don
-
arkimedes
-
einarborgari
-
apalsson
-
jobbi1
-
postdoc
-
geiragustsson
Myndaalbúm
Af mbl.is
Innlent
- Borgin refsi íbúum með því að láta tún vaxa villt
- Tvöfalt meira fjör ef eitthvað er
- Jóhanna Vigdís þakkaði fyrir samfylgdina
- Við leyfum okkur alveg að dreyma
- Áhersla á jafnrétti lykillinn að velsældarríki
- Tilvísun ekki lengur forsenda greiðsluþátttöku
- Hafnar því að verra tilboði hafi verið tekið
- Endurheimtu flak strandveiðibátsins sem sökk
- Njóta þess ekki að lesa ef þau basla við bókstafi
- Þreföldun hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ
- Austfirskur pítsastaður opnar útibú í Kína
- Matarbankar Fjölskylduhjálpar loka á morgun
- Spáir nýju félagshyggjuafli: Fólk að ræða saman
- Fylgi Samfylkingar ekki verið meira í 16 ár
- Leikskólum borgarinnar lokað 190 sinnum síðasta ár
Fólk
- Sitja enn á rökstólum í máli Diddy
- Sakar móður Tupac um að hafa aðstoðað við að enda líf sonar síns
- Við eigum bara eina sekúndu í einu
- Tökum lokið á fjórðu seríu Bridgerton
- Of Monsters and Men gefa út nýja smáskífu
- Kaleo-miðarnir ruku út á innan við mínútu
- Er hann strax kominn yfir hana?
- Menningarlegur landflótti blasir við
- Harry Styles slær sér upp með dularfullri konu
- Íslenska dívan
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.