Lúxus vandamál ríku þjóðana og áhyggjur Grétu

Sorphirða og endurvinnsla er stærra vandamál en áhrif Kórónuveirunnar. Í menguðum stórborgum hefur dauðsföllum fækkað vegna minnkandi iðnaðarframleiðslu. Ríku þjóðirnar hafa flutt sín sorphirðuvandamál til fátækra þjóða eða eins og Mosfellsbær, vilja þau fjær sér.

Rúmenía og Búlgaría eru að fyllast af sorpi sem var flutt frá Vestur-Evrópu og átti að fara í endurvinnslu, en hleðst upp við þjóðvegi og fyllir landbúnaðarlönd. Vandinn hleðst upp og gerir þjóðlöndin enn fátækari, "þriðja flokks ríki?" Bellahöj kirkjan í Kaupmannahöfn skreyti altari guðshússins með rósum og túlípönum sem komu í flugi frá Kenýa. Íslensk offramleiðsla af kindakjöti var flutt með flugi til Kína. Stærstur hluti neytts grænmetis á Íslandi er fluttur með skipum heimsálfa á milli.

Listinn er langur og alltaf kemur fram í fréttum eitthvað nýtt. Ófreknótta Gréta hin sænska er tiltölulega hógvær í túlkun sinn á umhverfis og offjölgunarvandanum. Kjarkmikill og ákveðinn unglingur þótt hún kunni að blanda hnattlægri jarðfræðilegri hlýnum saman við manngerða.

Kórónuveiran hefur slegist í för með Grétu þegar hún ákallar ríku þjóðirnar í nafni ungu kynslóðarinnar. Síðast þegar ég sá hana í sjónvarpi var hún í stígvélum meðal unglinga í Bretlandi. Nú þegar Bretar baða sig í sólskini heyrist fátt af ferðalögum hennar. Eflaust að sinna skólaskyldu í heimalandinu þegar hægir á allri starfsemi iðnvæddu ríkjanna. 


mbl.is Lýsa óánægju með bílhræ og rusl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband