Pútín er mikill

Síðasta setningin í greininni er smellurinn í frásögninni. Pútín er allt um lykjandi og eignast ríkið að lokum. Ævintýrið er kórónað. Gjafir eru færðar Pútín. Minna má það ekki vera en verk eftir Michelangelo og Rembrant. Pútín hringir í Sir Eldon John og ræðir málefni hinsegin fólks. Spaug eða fúlasta alvara, enginn veit en sagan er farin af stað.

Bestu ævintýrin eru sögð gerast í steingrárri svalalausri steinsteypublokk frá Stalínstímabilinu. Gjafirnar eru í upprúlluðum hólkum. Khrútsjov kallinn var ekkert uppveðraður en sagan er gerð trúverðug með pólitískum spuna. Pútínævintýrin eru ekki síðri en kóngsævintýrin.

Sagan um málverkin hennar Ninu hefur margar óvæntar uppákomur. Eiginlega grátbroslegar eins og í Kirsuberjagarði Antons Tjéskov. Almenningur veit hvað hann hafði í gömlu leiðtogunum en nýju herragarðseigendurnir eru enn ekki búnir að segja sitt síðasta.

Að lokum kemur hið sanna í ljós. Einkar skemmtileg frásögn með spennuþrungnum ævintýraljóma. Blessaður sé Pútín og allir hans lögreglumenn. Þeir munu vernda ríkið og sjá um að lokum komist allir og allt sem týnt var í örugga höfn. 

 


mbl.is Hið sanna loks komið í ljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband