Hástig ávanans er fíkn

Ritstjóri Kastljóss er ekki rökvís þegar hann er flæktur í eigið net. "Ógeðissjúkdómur" kann að vera viðeigandi nýyrði. Hvítþvottur við vog getur verið upphafið að endalokum ávans en engin vissa fyrir lausn nema menn taki á eigin málum. Fíknin getur verið "lúmskt kvikindi", en er ekki sjúkdómur. Fáir ráða för þegar um alvarlegan sjúkdóm er að ræða. Vont er að bendla sjúkdóma við ávana.

Sjónvarpsfíklar, spilafíklar, reykingamenn og áfengisfíkn. Fíknir eru ótal margar en ekki hefur verið hægt að tengja þær við geðsjúkdóma þar sem menn stjórna ekki för. Eituráhrif frá áfengi og lyfjum getur leitt til stjórnleysis og óminnis, en venjulega ná menn áttum þegar eiturefnin fara úr líkamanum.

Áfengisfíkn á háu stigi hefur verið skilgreind sem sjúkdómur og sjúkratryggingar komið að málum. Margar fíknir eru heilsuvandi og læknavísindin geta komið að miklu gagni við að finna leið út úr ógöngunum. Það er og þjóðfélagsvandi þegar stór hluti fólks á öllum aldri getur ekki komið saman nema með því að nota áfengi.

Að viðurkenna vanmátt sinn er fyrsta skrefið, síðan tekur við samhæfing og samtakamáttur fólks sem hefur breytt um lífsstíl frá ávanabindandi fíknum. Einstakir menn geta með sínum eigin Guð komist á hina breiðu braut, óstuddir. Flestir ganga þó í félag eða söfnuð þar sem þeir fá félagslegan stuðning og styrk gagnvart fíknum.

 

 


mbl.is Sigmar í meðferð á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Magnúsdóttir

Alveg sammála þér, Sigurður. Ég reyki. Og er fíkill af því leyti. En reykingarfíkn er ekki skilgreind sem sjúkdómur. Sá sem drekkur áfengi, og er fíkill að því leyti, er sjúklingur. Viðkomandi fær að fara í viðeigandi meöferð við "sjúkdómnum"  og er á launum á meðan, en ef reykingamaðurinn fer í af-reykingarmeðferð, fær hann ekki greidda veikindadaga á meðan hann er í burtu.

Ingibjörg Magnúsdóttir, 21.5.2015 kl. 00:17

2 Smámynd: Sigurður Antonsson

Sæl Ingibjörg

Flestir temja sér einhverja ávana. Reykingaávaninn er oft erfiðari en áfengisfíknin. Fíkillinn verður að að leysa málin að lokum vilji hann fá ný og betri lífsgæði.

Góður punktur hjá þér með veikindadagana. 

Sumir eyða sumarfríunum sínum í heilsubætur og vilja greiða allt sjálfir. 

Sigurður Antonsson, 21.5.2015 kl. 07:25

3 Smámynd: Sigurður Antonsson

Mikill kaffidrykkja olli svefntruflunum hjá mér. 6-8 bollar á dag þola fæstir. Kaffi var alstaðar á boðstólum. Nú hefur þessi gestrisni eða ofnotkun minnkað á vinnustöðum og í fyrirtækjum. Tedrykkja er mun skaplegri og minna koffín. Saxað hvannalauf íslenskt með te er fyrirtaks drykkur. Nú drekk ég einn lítinn bolla af kaffi á dag og svefninn er með ágætum. Versta við alla þessa ávana að maður er lengi að ná áttum og venja sig við nýja betri.

Sigurður Antonsson, 21.5.2015 kl. 09:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband