Sigurganga

Afrek Guðna Páls er meira en margur hyggur. Sá tvo menn á Travel fara umhverfis landið með kvikmyndatöku fólki. Tveir á sama bát. Guðni fer þessa ferð einn og sýnir mikið þor í allskonar sjólagi og straumum.  Auk þess er hann að leggja góðum málum lið. Fólki sem hann getur verið fyrirmynd um hreyfingu.

Áreynsla eykur þrótt. Hver kílómetri í skokki eða hlaupi er ákveðinn sigur fyrir þá er vinna innivið. Að hámarka áreynslu sumarsins í ágúst er aldagömul hefð.

Að drífa sig út eða inn í hreyfingu skilar vellíðan fyrir huga og líkama. Skilningarvitin skerpast, meira blóðflæði, verkefni lífsins verða auðveldari og áhyggjur minnka. Það er vegna þess að líkaminn á auðveldara með að leysa verkefni þegar þrek og þróttur eykst.

Hin vikulega kvöldganga mín hljóðaði upp á 6 km en teygðist í 10 km. Eins eða tveggja skóa ganga. Hluti hópsins gat farið styttri leið. Kapp með forsjá og góð leiðsögn. Gengið var á Lambafellið við Þrengslin. Fellið er stórt og langt, hækkun 250 - 450 metra eftir því hvað margir tindar eru lagðir undir fót. Allgóð æfing eina kvöldstund. 


mbl.is „Ég er gríðarlega stoltur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband