16.4.2013 | 13:49
Ríkisstyrkir VG
Ráðherra Íslands og fyrrverandi foringi VG, núverandi þingmaður vill nú láta Bjarnarflagsvirkjun njóta vafans. Hann sér að stór hluti kjósenda hans vilja leysa affallsmálin fyrst. Fyrir nokkrum vikum lagði hann fram frumvarp sem var samþykkt, um milljarða ívilnanir til kísilsvers á Bakka. Hann skrifaði upp á kosningavíxilinn eins og margir aðrir hyggjast gera.
Hann væntir þess að komast aftur á þing fyrir norðan í skjóli misréttis atkvæða. Það þurfa ekki nema rúmlega þrjú þúsund að greiða honum atkvæði. Í Suðvesturkjördæmi er krafist að hátt í fimm þúsund atkvæði standi að baki þingmanni. Auðvitað vildu VG þingmenn ekki samþykkja stjórnarskrá sem myndi jafna atkvæðisrétt eða skerða völd ráðherra.
VG auglýsir nú dag hvern með hálfsíðu í Fréttablaðinu á besta stað góðverkin sín, sem öll eru ríkisstyrkt. Kjósendur fá að borga en VG handvelur menn sem þeir styrkja þegar þeir eru við völd. Aðrir komast varla að. Þetta heitir fulltrúalýðræði.
Tók því ekki fyrir tvo mánuði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
sigurfang.blog.is
Bloggvinir
- hekla
- sighar
- thjodarskutan
- esgesg
- tilveran-i-esb
- rabelai
- krisjons
- stinajohanns
- kreppan
- jonvalurjensson
- jennystefania
- elinerna
- photo
- vulkan
- kermit
- ipanama
- svavaralfred
- robertb
- olafurjonsson
- josira
- bookiceland
- kristjan9
- shv
- aslaugfridriks
- stjornuskodun
- don
- arkimedes
- einarborgari
- apalsson
- jobbi1
- postdoc
- geiragustsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.