Kísilver sem skiptimynt

Skollaleikurinn á Bakka gæti endað með ósköpum. Affallsvatnið sem kæmi frá virkjuninni í Bjarnarflagi gæti skaðað Mývatn. Flokksforingi VG virðist vinna á móti sínum eigin flokksmönnum þegar hann freistar þess að fá frumvarp um kísilver samþykkt. Með öllum þeim ívilnunum og meira til en áður þekkist. Hann hefur gagnrýnt aðra flokka í áratugi fyrir tjónkun við stóriðjufyrirtæki, en ætlar nú að gera enn betur. Hans eigin flokksystkini vilja fara hægar í umhverfismálum en gagnrýna ekki skattaívilnanir sem eru í frumvarpinu.

Álfheiður Ingadóttir segir: Framkvæmdir þar væru ekki afturkræfar, þótt því hefði verið haldið fram, sagði Álfheiður, og hvatti til þess að Landsvirkjun léti vinna nýtt umhverfismat vegna framkvæmdanna. Hún lýsti einnig áhyggjum sínum sérstaklega af vatnafari, en Mývatni stafaði hætta af virkjun í Bjarnarflagi, meðal annars vegna affallsvatns. Hún benti einnig á að breytingar á vatni Mývatns „skipti sköpum fyrir allt líf í vatninu og vistkerfi þess í heild“.

VG virðist ætla að nota kísilver á Bakka til að koma einum til tveimur frambjóðendum á þing í skjóli ójafns atkvæðisréttar. Atvinnubótavinna á Bakka sem skattgreiðendur þurfa að greiða. Ef nota á frumvarp um Kísilver á Bakka sem skiptimynt á Alþingi munu kjósendur fyrr eða síðar sjá í gegnum plottið og svara fyrir sig.


mbl.is Þingfundur hefst brátt að nýju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband