Ástæða fyrir öllu

Eftirvæntingin var mikill hja börnunum í sætaröðinni fyrir aftan mig í flugvélinni til Óslóar. Þau voru öll á leið í vetrafrí til að hitta föður sinn sem hafði starfað um skeið í Noregi. Krakkar á 7, 11, og 15 ára aldri sem ætluðu að flytjast til Noregs næsta sumar ásamt móður sinni. Margir myndu segja blóðtaka, fólk á besta aldri að yfirgefa landið í leit að betra föðurlandi. Landi sem veitir meira öryggi og framtíðarmöguleika. Land þar sem hægt er að eignast eigið húsnæði án þess að setja sig í ævarandi skuldaklafa. Hjá þjóð sem er ákaflega vinveitt Íslendingum og tekur á móti þeim eins og vinum sem hafa verið lengi í burtu. 

Það er mikill söknuður að yfirgefa sína heimahaga, land feðra og skólafélaga, land sem menn elska og dá. Setjast að hjá ókunnugum fjölskyldum og í ólíku umhverfi. Enda þótt Noregur sé fallegt land eru staðhættir allt öðruvísi. Maður sér aldrei langt frá sér, mörgum finnst þeir vera innlokaðir í skógi og aðkrepptum fjörðum. Framundan er ákveðin glíma við að aðlagast, temja sér aga og aðhaldssemi í fjármálum. Læra málið og setjast á bekk með nýjum skólafélögum.

Kosturinn við Noreg eru tækifærin og eftirspurnin eftir duglegum starfskröftum. Þeir sem koma sér áfram mega búast við starfsframa og ábyrgð í nýjum störfum. Viða eru Íslendingar og menn læra af hver öðrum. Starfsreynsla er metin og skólar aðgengilegir fyrir þá sem þurfa að ná sér í aukin atvinnuréttindi. Yfirleitt betri löggjöf og víðtækari í stærri þjóðfélögum. 

Oft getur lítill meirihluti komið í veg fyrir skynsamleg lög eða sanngjarna niðurstöðu. Einn ófriður í fjölbýlishúsi lýsir vel ástandi á mörgum sviðum þjóðlífs. Að lokum er komið nóg og menn yfirgefa óviðunandi stöðu. 


mbl.is „Erum að flytja út um helgina“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband