25.1.2013 | 21:34
Fæla frá sér kjósendur
Flott þegar þingmenn geta komist að niðurstöðu, ekki síst þegar mikill meiri hluti þingmanna vill koma málum í höfn. Ungliðarnir eru ekki eins framsýnir og hatast eins og margir eldri flokksmenn VG út í frjálsa atvinnustarfsemi. Þeir hugsa um það eitt að komast í vinnu hjá því opinbera. Drekasvæðið er fyrir þá ekki vinnslusvæði. Ríkistjórnarflokkarnir hafa skapað lífeyrissjóðum og útlendum fjárfestum forréttindi.
Slæmt er þegar flokkar vilja ekki lýðæðisumbætur með nýrri stjórnarskrá. Hvað þá þegar þeir hyggjast selja "olíusjóði" okkar Landsvirkjun til verndaðra valdahópa. Sjóða sem ekki lúta lýðræðislegum kosningum, þar sem félagsmenn hafa ekki atkvæðisrétt. Ef menn eru á móti foringjunum eru þeir úthrópaðir sem vinstri menn. Miklar væntingar um aukna ávöxtun lífeyrissjóða á að leysa með hækkun iðgjalda 2015. Ríkið mun þá fá mest af þeirri hækkun. Flokkar sem ekki vinna með sínum kjósendum tapa eða standa í stað.
Stjórnlagafrumvarp úr nefnd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
sigurfang.blog.is
Bloggvinir
- hekla
- sighar
- thjodarskutan
- esgesg
- tilveran-i-esb
- rabelai
- krisjons
- stinajohanns
- kreppan
- jonvalurjensson
- jennystefania
- elinerna
- photo
- vulkan
- kermit
- ipanama
- svavaralfred
- robertb
- olafurjonsson
- josira
- bookiceland
- kristjan9
- shv
- aslaugfridriks
- stjornuskodun
- don
- arkimedes
- einarborgari
- apalsson
- jobbi1
- postdoc
- geiragustsson
Myndaalbúm
Af mbl.is
Innlent
- Tíðindi í nýrri könnun: Framsókn út af þingi
- Stal nokkur hundruð kílóum af kjötvörum
- Spursmál: Samfylkingin lækkar flugið
- Blanda íbúða, þjónustu og verslana
- Höfum sloppið bærilega með skaða af þessu gosi
- Ekki alltaf sammála Svandísi
- 17% ánægð með störf Einars
- Líklegt að farið verði af neyðarstigi í dag
- Ný könnun í Spursmálum: Er Sigurður Ingi fallinn?
- Nýjar íbúðir eru lengur að seljast
Erlent
- Svíar virða ögranir Rússa að vettugi
- Efast ekki um að Bandaríkin átti sig á skilaboðum
- 281 hjálparstarfsmaður drepinn á árinu
- Sjötti ferðamaðurinn er látinn
- Segjast hafa drepið fimm vígamenn
- Eldflaugavarnarkerfi í skiptum fyrir hermenn
- Segir að friði verði aðeins náð með afli
- Rússar sagðir útvega N-Kóreu milljón olíutunnur
- Pam Bondi næsti dómsmálaráðherra
- Handtekinn fyrir njósnir í bandaríska sendiráðinu
Athugasemdir
Ætli ESB-stýrði landsstjóri Íslands, Álfheiður Ingadóttir og hennar leiðitömu trjónuhestar, viti ekki af því, að ef Ísland gengur í ESB, þá gildir ekki stjórnarskrá Íslands fyrir almenning á Íslandi, heldur gildir þá einræðis-stjórnskipun ESB, með öllum sínum bankaræningja-hagræðingar-stjórnsýsluránum.
Hafa Íslandsbúar ekki fengið nóg af þessari veiði-klíku-EES-klíkustjórn bankaræningjanna?
Væri ekki rétt að byrja á að fara eftir núgildandi stjórnarskrá lýðveldis Íslands?
Og jafnframt því, að virkja allar 5 spurningar í Stjórnarskrár-þjóðaratkvæðagreiðslunni.
En sleppa fyrstu spurningunni, sem er svo ó-útreiknanleg, að ekki nokkur maður getur skilið það rugl, sem býr að baki þeirrar spurningu. Enda fyrirskipuð og samin af ESB-valda-ræningjaveldinu.
Alþingi ætti að samþykkja, að allar 5 tillögurnar fyrir neðan fyrstu spurninguna verði afgreiddar sem lög frá alþingi. Í þeim tillögum er réttur almennings vel varinn, og sérstaklega með ákvæðinu um, að tiltekið hlutfall kosningabærra manna geti krafist þess að mál fari í þjóðaratkvæðagreiðslu.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 26.1.2013 kl. 00:45
Sæl Anna
Alþingi er ekki rétti aðilinn til að breyta stjórnarskrá þar sem hún kveður á um hlutverk þeirra og áhrif. Það sýnir sig best þegar Framsóknarmenn mótmæla að málið fari úr nefnd. Þeir vilja áfram ójöfnuð í vægi atkvæða. Sama gildir um fleiri flokka.
Mál til komið að þingið komi nýrri stjórnarskrá í höfn. Augljós er að málum verður fylgt eftir og þeir flokkar sem hyggja á málþóf geta ekki annað en tapað atkvæðum í komandi kosningum. Kjósendur sjá í gegnum málatilbúninginn og er miklu betur upplýstir en nokkru sinni áður.
Vilmundur Gylfason kom snemma auga á vankanta fulltrúalýðræðisins og vildi breytingar en uppskar háð og viljaleysi ráðandi afla. Þeir sem græða mest á betri stjórnskipan eru flokkarnir sem ekki hafa traust almennings og eiga erfitt með að stjórna í núverandi kerfi.
Sigurður Antonsson, 26.1.2013 kl. 20:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.