Valdabarátta í netheimi

 

 

Það kemur á óvart að tölvuhakkarar geti sett stórfyrirtæki út af laginu með árásum á netþjóna. Bandaríkjamenn eiga mikið að verja þar sem alþjóðleg fyrirtæki þeirra erlendis standa undir helmingnum af tekjum Bandaríkjanna.  Árás tölvuhakkara sem vilja meira réttlæti og upplýstari heim setur þá í vanda. Þeir hafa verið önnum kafnir við annarskonar eftirlit, kanna t.d. hug og bakgrunn þátttakenda hjá Sameinuðu þjóðunum á Manhattan. Netlögregla hefur ekki verið þeirra takmark enda frjálsræði og óheftir markaðir þeirra ær og kýr. Netið er hinsvegar valdablokk sem hefur æ meira að segja.

Kínverjar hasla sér völl þar sem lítið ber á og bjóðast til að nýta auðlindir þjóða sem hafa takmarkaða tækniþekkingu. Elja þeirra og ástundun á eftir að fleyta þeim langt fram úr öðrum þjóðum ráði þeir við mengunina í heimalandinu. Netheimurinn er þeirra ógn og ávinningur, enn sem komið er notast þeir mest við tölvufyrirtæki frá Ameríku til að ná samskiptum á netinu 

Smáþjóðir eins og Svíar kunna að ráða við minniháttar eftirlit í heimalandi en eiga erfitt með að standast árásir öflugra netvéla. Þeir óttast Rússa í þessum efnum og ekki að ástæðulausu eftir árás Kremlverja á  netbúnað Eistlendinga. Bretar eru annálaðir fyrir að hýsa ýmsa frumkvöðla og munu seint framselja Julian Assange.

 


mbl.is Barist í Netheimum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband