Meðalhóf vandfundið

 

Atvinnuleysi er mun meira. Þúsundir atvinnulausra eru farnir til Norðurlanda í atvinnuleit. Ekki mælast allir á atvinnuleysisskrá og atvinnurekendur án vinnu eru ekki allir með.  Það vekur athygli að ungt fólk 16-24 ára er ekki fjölmennt. Mun meira í Evrópu t.d. á Norðurlöndum, Ítalíu og Spáni. Að skapa atvinnubótavinnu sparar ekki vaxtagreiðslur og atvinnuleysisbætur. Það kemur á óvart hvað margir verktakar hafa vinnu. Erfitt mun verða að halda verðbólgu niðri ef spenna myndast á vinnumarkaði. Ef mörg stór verkefni fara af stað verða mörg minni og arðsamari að víkja. Nú er kjörið tækifæri fyrir sprotafyrirtæki og þá sem vilja spreyta sig á útflutningi. 


mbl.is 7,5% atvinnuleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elín Erna Steinarsdóttir

Ég er svo hjartanlega sammála að slæmt er að fara í stórkallalegar framkvæmdir sem víkja sprotafyrirtækjunum úr vegi. Mig klæjar hins vegar í fingurgómana að nýta atvinnulausar hendur í tímabundið atvinnuátak, s.s. ýmiskonar umhverfisverkefni, félagsliðastörf með ungum, veikum og öldnum. Slík störf myndu ekki riðja sprotafyrirtækjum úr vegi enda væru þau kostuð af Vinnumálastofnun. Svo virðist hins vegar að stéttarfélögin líti svo á að það sé réttur þess sem missir vinnu að vera atvinnulaus fái hann ekki vinnu sem honum líkar. Þetta er sóun á mannauði að mínu mati.

Elín Erna Steinarsdóttir, 18.11.2010 kl. 18:41

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Það er verið að nota velferðarkerfið til þess að styrkja verktaka. Steypu á Landsspítalann, steypu á framhaldsskólanna.

Lítill gaumur er gefinn af því hvað almenningur vill sem er betri þjónusta en betri þjónusta fæst ekki með meiri steypu.

Uppsagnir á landsspítala þýðir að það er verið að kasta menntun og þekkingu á glæ.

Stjórnvöld undir forystu AGS hafa fyrir löngu komið auga á að landsflótti hagræðir tölum um atvinnuleysi. Það er hluti af leiknum að flæma fólk úr landi.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 18.11.2010 kl. 19:49

3 Smámynd: Sigurður Antonsson

Sammála þér Elín. Atvinnulausir eru ekki sýnilegir. Margir hæfileikamenn og konur mæla göturnar að óþörfu. Samfélagsþjónusta ætti að vera partur af endurhæfingu hjá þeim sem hafa verið lengi atvinnulausir. Tímabundin hlutastörf eiga heldur ekki að koma í veg fyrir að menn fái atvinnuleysisbætur. Á meðan atvinnurekendur geta ekki fundið þá sem eru án atvinnu eru lög um Vinnumálastofnun ófullkomin og þurfa að endurskoðast reglulega. Atvinnumarkaðurinn er síbreytilegur og kynning á störfum ætti að fara fram á vegum Vinnumálastofnunnar. Eins og nú er virkar aðkoman að Vinnumálastofnun niðurlægjandi og fráhrindandi.

Margir ágætir menntamenn tala um að atvinnuleysi sé 1 til 2% t.d. í Vestmannaeyjum. Í raun er ekki um að ræða atvinnuleysi þegar það mælist svo lágt. Þá vantar venjulega menn í vinnu og álag er óþarflega mikið á mörgu starfsfólki.

Jakobína Ingunn. Stjórnvöld og AGS stýra miklu, en mikilvægt er að atvinnumarkaðurinn sé sem fjölbreyttastur og stór eins og nú er. Þakka ber samstarfi þjóða að við getum farið til Evrópulanda og fengið atvinnu án leyfa eins og áður var.

Sigurður Antonsson, 24.11.2010 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband