17.6.2018 | 14:01
Dramb er falli næst. Fjöldi áhorfenda skiptir ekki öllu máli
Oflæti er hættulegast Íslendingum. Myndin sem fylgir einni fréttinni sýnir að brotið er á Messi með handartogum. Fréttamaður segir í einum texta að Birkir sé í varnarbaráttu. Athugasemdir Messi eru réttmætar. Liðið lék varnarleik og kom vel út úr því.
Tek það fram að ég er ekki mikið inn í fótbolta. Var lítillega í KR og síðan í Þrótti þar sem ungir menn voru jafnari. Lítill þjóð má ekki ofmetnast af því einu að standa uppi í hárinu á úrvalsliði. Það eru um 70 ára síðan Íslendingar tóku fyrst þátt í bresku getraununum. Allar götur síðan hefur það verið draumur fárra að spila í toppliði, komast í fremstu röð.
Ekki má gleyma að almenningur og bæjarfélög hafa sýnt fótboltanum meiri stuðning en öðrum íþróttum. Byggt íþróttahallir og grasvelli fyrir tiltölulega fáa. Með keppnisíþrótt þar sem reynt er að byggja upp sjálfstraust heillar þjóðar. Argentínumenn eru 130 sinnum fleiri og hafa ýmislegt sameiginlegt með Íslendingum.
Búa á ystu mörkum suðlægðar byggðar. Búa við óútreiknanlega verðbólgu og stjórnarfar sem byggist á tíðum stjórnarskiptum. Kraftmikill þjóð og miklar kjötætur eins og hin norðlæga smáþjóð.
![]() |
Ísland gerði ekki neitt, sagði Messi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.3.2018 | 22:02
Íslenska í Hólavallakirkjugarði? Ný nálgun
Prófessor Sigríður er jákvæð og raunsæ. Krakkar vita meira en margur heldur. Tæknibyltingin í algleymi og framboð á netmiðlum óendanlegt. Að ná hæfni strax í ensku þarf ekki að vera slæmt. Að ná góðum framburði og skilningi í ensku kemur sér vel í háskóla þar sem mörg fög eru kennd á ensku. Betra að styðja og leiðbeina eins og háskólaprófessorinn segir.
VÍ vildi ekki frábæra nemendur með 10 í ensku og með háar einkunnir í stærðfræði hjá þeim sem voru með 7 í íslensku. Ágætur forstöðumaður mannanafnanefndar vill stýra nafnavali og hafa vit fyrir foreldrum. Skírnarnafngiftir eru næst getnaði og fólk vill ekki opinberar nefndir inn á gafl til sín. Sá valmöguleiki er alltaf til staðar að breyta eigin nafni, en ekki nægilega kynntur ungu fólki. Unga fólkið getur náð ágætum árangri í íslensku á seinni skólastigum. Lestur fornbóka átti sinn blómatíma en gæti allt eins komist í tízku að nýju.
Athyglisverð ráðstefna hjá ungu fólki.
![]() |
Yngra fólkið kýs ensku umfram íslensku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2018 | 22:17
Lögregluborg? Sérsveitir og 6 fréttir um aðgerðir.
Ekki færri en 10 sérsveitamenn á Ægisíðu. Engar ástæður tilgreindar. Á öðrum stað eru getgátur um handtökur. Þrír handteknir á Grettisgötu af sérsveitamönnum. Ekkert lát á fréttum um lögregluaðgerðir og engar skýringar á fjöldahandtökum fyrr en undir kvöld.
Er Reykjavík að breytast í borg þar aðgerðir sérsveitamanna eru daglegt brauð? Miðað við fjölda íbúa ættu Akureyringar að hafa tvo sérsveitamenn í aðgerðum. Engar fréttir berast þó frá lögreglu á Akureyri. Reyndar fátt síðan RÚV lét loka veitingastað sem íslenskir Kínamenn ráku. Ekkert mansal átti sér stað og engin hætta á ferðum.
Er ekki ástæða til að staldra við og athuga hvernig lögreglumál eru þróast í smáborg eins og í Reykjavík? Ef sérsveitir eru kallaðar út mætti álykta að um vopnaburð og eiturlyfjasölu væri að ræða? Athygli vekur að í öðrum fréttum er lögreglan að vara við aukinni glæpatíðni. Knýja á um aukið fjármagn og mannafla.
![]() |
Lögregluaðgerð á Ægisíðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2018 | 21:02
Reiðilestur RÚV, ekki mark á takandi
Hver er tilgangur RÚV með þætti eins og Kveik, annað en að breiða út pólitískan rétttrúnað. Skoðanir á alþjóðamálum sem eiga aðeins upp á pallborðið hjá vinstri mönnum. Forstöðumaður Samgöngustofu segir að Atlanta flugfélagið hafi engin lög brotið.
Á Eyjunni mátti sjá frétt þar sem ríkisstarfsmenn RÚV tækla ævi Berlusconi. Endalok Silvio Berlusconi. Er þessi fordæming partur af upplýsingaþætti Ríkisútvarpsins? Nú horfi ég aðeins á veðurfréttir í sjónvarpi. Þær eru enn ekki litaðar en skotið inn á milli frétta og Kastljós.
Silvio heimsótti Þingvelli um ári. Hann hafði ekki miklar mætur á burstahúsunum eða kirkjunni sem honum þótti lítið til koma. Það var hans skoðun og ber að virða hana. Tímarnir breytast. Spyrja mætti í dag hvort Páfinn í Róm búi á Laugaveginum. Kannski er hann búsettur við Hörpu miðað við fjölda ferðamanna á þessum slóðum. Allt breytist nema Ríkisútvarpið.
![]() |
Vopnaflutningar fari til utanríkisráðuneytis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 7.3.2018 kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2018 | 21:11
Pólitík út á hól. Leita sökudólga í stað þess að leysa mál.
Ungir vinstri eru í litlum tengslum við veruleikann. Vita varla hvað þeirra flokkur stendur fyrir. Sama gildir um marga Pírata og Viðreisnmenn. Eru í pólitík til að finna að en ekki leysa mál. Þegar stjórnmálamenn ýta undir órökstuddar aðfinnslur eru þeir að veikja kerfið í stað þess að styrkja.
Margar stofnanir eru undirlagðar af sama anda, þar sem búnar eru til ástæður til reka í menn hnífablöð. Stjórnmál komin í þrot. RÚV kórónar umfjöllunina og gefur línurnar. Lögreglan baðst forláts á mistökum, en þegar athyglin beinist að barnaverndarnefndum fara þær undan og dreifa óhróðri.
Lítill ríki eiga ekki að trana sér fram. Utanríkisráðuneytið er ofvaxið og litill frami af spretthlaupi í leit að stöðutáknum.
![]() |
Segir Braga ekki hafa brotið af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.2.2018 | 21:39
Sagan endalausa. Mál 214
Með reglulegu millibili er greint frá nýrri rannsókn í máli 214. Mál sem engan enda virðist taka. Ættingjar sakborninga fagna og þeir síðustu koma út úr skápnum. Þeir sem enn lifa af sakborningunum láta sér fátt um finnast. Hafa upplifað of mörg vonbrigði? Nýjar kynslóðir munu leita eftir meiri upplýsingum og ekki er ósennilegt að safn verði til. Það eitt hve málið dregst á langinn sýnir hve málið er erfitt fyrir lögfræðistéttina og dómskerfið.
Í Austur Evrópu eru til "Terror"-söfn í Búdapest og Póllandi sem sýna hvernig framapotarar í öryggislögreglunni misnotuðu aðstöðu sína og tóku að "framkalla" játningar. Átakanlegt er að ganga í gegnum svona söfn. Hver sem eyðir hluta úr dagstund í að skoða hryllinginn verður aldrei sá sami. Mannvonskan yfirþyrmandi, sem hafði þann aðal tilgang að halda fólki í ótta og festa ólöglega valdhafa í sessi.
Hér urðu margir einstaklingar og fjölskyldur fyrir miklum þjáningum sem afleiðing af einangrun og þvinguðum játningum á hendur ungmennunum í Guðmundar og Geirfinnsmálinu. Skipaðir lögmenn sakborninga voru niðurlægðir og haldið utan við sönnunargögn. Engin ástæða er að draga úr því. Enginn var tekin af lífi eins og átti sér stað um alla Austur-Evrópu á dögum kommúnista.
![]() |
Skiptir máli fyrir almenning og dómstóla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.2.2018 | 20:23
Farsæll stjórnmálamaður og hógvær
Í ráðherratíð Sturlu Böðvarssonar voru malbikaðir fleiri vegir en hjá nokkrum öðrum samgöngumálaráðherra. Þeir sem komu á eftir hafa varla verið hálfdrættingar. Snæfellsbúar, ferðamenn og flestir landsmenn njóta góðs af veginum kringum Jökull og til Stykkishólms. Vegurinn inn í Heiðmörk frá Vífilsstöðum var malbikaður í tíð Sturlu svo eitthvað sé nefnt.
Sturla Böðvarsson samgöngumálaráðherra 1999-2007 vakti athygli á árinu 2005 að ferðaþjónustan væri stærsti atvinnuvegur veraldar. Nú 13 árum síðar er hann orðinn landsins mesta tekjulind. Sturla lagði grunninn að þeim vegabótum sem gagnast hefur ferðmönnum einna mest síðustu ár.
Afburðastjórnmálamönnum er sjaldan þakkað sem skyldi. Á aðra má varla minnast á nema hópur andstæðinga reki upp rammakvein.
13.7.2016 | 19:53
Löngu tímabær tvöföldun Reykjanesbrautar
![]() |
Skórnir á hilluna eftir langan feril |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2018 | 22:45
Ferskur nútíma blær býr í myndum Maríu
Myndir Maríu Kjarval sem fylgja fréttinni eru athygliverðar og sýna að hún á ekki langt að sækja hæfileikana. Litirnir minna talsvert á litaval íslensk málara sem bjó lengst af í Danmörku. Hún þyrfti að sýna list sína á Íslandi í dag.
![]() |
Íslendingur í annað sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2018 | 21:18
Bjarga þarf ungum og eldri fíklum með fleiri lausnum
Mikið og gott starf er unnið hjá SÁÁ. Ömurlegt er samt að horfa upp á ekki finnast fleiri úræði við vímuefnavanda ungs fólk. Eftir að heimili eins og var í Gunnarsholti voru aflögð er fátt um langtímaafvötnun. Fyrir eldri og yngri sem ná aðeins árangri eftir margra mánaða afeitrun.
Merkilegt er að eftir meira en 40 ár staf SÁÁ skuli vera til eldra fólk sem ekki skynjar hættuna. Ávanabindingu sem getur fylgt ofnotkun á lyfjum og löglegum fíkniefnum.
![]() |
Spyrji aldraða um áfengisnotkun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.1.2018 | 17:32
Rosaleg hálka þegar rignir á glerunginn
Þar sem er saltað og mikið ekið er umferð greið og hættulítill. Allt annað ástand er á gangstéttum og á fáförnum götum. Vegur í gegnum Heiðmörk er eitt svell þar sem hann er nokkrum metrum ofar. Nýlega lokað. Segir talsvert um ástandið á Mosfellsheiði og fjallvegum.
![]() |
Á fjórða tug hálkuslysa í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
sigurfang.blog.is
Bloggvinir
-
hekla
-
sighar
-
thjodarskutan
-
esgesg
-
tilveran-i-esb
-
rabelai
-
krisjons
-
stinajohanns
-
kreppan
-
jonvalurjensson
-
jennystefania
-
elinerna
-
photo
-
vulkan
-
kermit
-
ipanama
-
svavaralfred
-
robertb
-
olafurjonsson
-
josira
-
bookiceland
-
kristjan9
-
shv
-
aslaugfridriks
-
stjornuskodun
-
don
-
arkimedes
-
einarborgari
-
apalsson
-
jobbi1
-
postdoc
-
geiragustsson