"Noregur er fyrir alla" sagði konungurinn

Með auknum framlögum er Reykjavíkurborg að auka fjárhagsvandræði sín. Leggja grunn að aukinni verðbólgu eins og fleiri sem verða að keppa um starfsfólk. Borgarstjórinn er enginn konungur en verður að láta sem svo sé.

Ruðningsáhrif af ívilnunarsamningum atvinnuveganefndar Alþingis hafa skapað óþarfa spennu á vinnumarkaði. Áhrifin eru að koma í ljós. Ferðamannaiðnaðurinn, stórefldur vantar starfsmenn. Starfsfólk sem ekki er fáanlegt, jafnvel frá löndum Eystarsalts þar sem launin eru margfalt lægri.

Umönnunariðnaðurinn hefur tekið fegins hendi við starfskröftum frá öðrum löndum. Það er bara ekki nóg. Alþingismenn og borgarfulltrúar sem eru að lofa upp í ermina á sér þurfa að skapa skilyrði fyrir aðkomu erlendra starfskrafta.

Noregskonungur er með breiðan faðm. Hikar ekki við að segja að Noregur sé starfsvettvangur allra er þangað koma á löglegan hátt. Olíusjóðurinn gerði sitt en hér er ekkert borð fyrir báru. Góðærissjóður. Noregur hefur í áratugi boðið útlendinga velkomna í sitt samfélag, það reyndi ég fyrir 50 árum og svo er enn í dag. Hér er eyþjóðin í vandræðagangi með að taka á móti örfáum.


mbl.is Vilja snúa vörn í sókn í skólamálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ég er alveg undrandi á því að 10 börn séu hámarksfjöldi á hvern starfsmann í leikskólum? Og svo er verið að fara með leikskólabörn  sumra leikskóla í heimsókn á þingpalla skrímsladeildarinnar ALÞINGIS? Hver er tilgangurinn með því að 6 ára börn fái ekki að vera 6 ára börn og þroskast í eðlilegum þroskandi leik?

Í grunnskólum, þar sem börn byrja 6 ára er ekkert hámark á fjölda nemenda á hvern kennara? Þetta hef ég eftir kennara sem upplýsti mig nýlega um þetta stóralvarlega mál.

6 ára barn í leikskóla hefur réttindi, en 6 ára barn í grunnskóla hefur engin réttindi miðað við sinn unga aldur, og er hent eins og síld í tunnu í óverjandi grunnskólatunnu. 25-30 nemendur eða fleiri í hverjum bekk? Áföll hljóta að vera algeng viðbrögð þessara réttindalausu ungu barna í grunnskólum landsins.

Skiljanlega koma margir ólæsir út úr svona allra þátta og stétta þrælakerfi.

Þetta er alveg ótrúlegt, en því miður satt.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 15.9.2016 kl. 17:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband