Vanþakklátt en spennandi

Hrunið og netið hefur gjörbreytt þjóðfélaginu. Nú vill kjósandinn fá meiri ákvarðana og þátttökurétt. Hann fylgist betur með, þökk sé netinu.  Í staðinn fyrir að láta fulltrúann og flokkinn ráða, vill hann sjálfur vega og meta málin, segja sína skoðun í atkvæðagreiðslu.

ESB aðild eru eitt þeirra mála sem kjósandinn vill kanna til hlítar. Sama gildir um gjaldmiðla. Breytingar á stjórnarskránni. Umhverfis og virkjunarmál. Hann vill ekki lengur að fulltrúi hans fái að ráðskast með þessi mál.

Flokkurinn eða þingmaðurinn getur beitt hræðsluáróðri, keypt atkvæði og  aukið fylgi, en það er skammgóður ávinningur ef  málstaðurinn er ekki áreiðanlegur. Fyrr eða seinna kemur sannleikurinn í ljós, afhjúpast. Þá kemur bakslag og vantraust.

Stjórnmálastarfið er ekki auðvelt frekar en blaðamennska. Hjá báðum reynir á forystuhæfileika, sköpunargáfu og ögun. Blaðamaðurinn verður að taka af skarið, lýsa því sem hann telur sannast og mikilvægast. Stjórnmálamaðurinn gerir út á óséðan afla, ávinning sem hann sér en er ekki alltaf fær um að vinna úr. Loforðapakka. Stundum notast hann við gömul tæki og kennslubækur þegar aðstæður hafa gjörbreyst.

Kjósendur vilja nú aðra nálgun. Stjórnmálamaðurinn leiði þáttökustjórnmál í stað þess að ákveða einn. Viðsnúningur á sér stað einnig í blaðamennsku. Nálgun og skyldur breytast hratt. Greinum og fréttum fylgja ógrynni athugasemda með þátttöku lesenda. Eftir á er allt annar sannleikur uppi á borðinu.


mbl.is Blaðamennska er versta starfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband