Jólakveðjur og hinir bestu

 

Egill Helgason prísar ” besta blaðamann” allra heima, Inga Freyr Vilhjálmsson ritstjóra DV 7. des. á Eyjunni: ”Vel skrifandi með ófáar afhjúpanirnar sem tengjast hruninu.” Hinn sami Ingi er ekki jafn hrifinn af því ” trausti” sem RÚV mælist með í könnunum. Segir hann stofnunina hafi verið á villigötum í fréttaflutningi og ekki stundað sjálfstæðar rannsóknir eða djúpar athuganir á þjóðfélagsmálum. Telur hann að traustið sem RÚV nýtur dýrkeypt í leiðara 17. des. Þannig talast þeir á hinir ”bestu.” Ritstjórinn forðast að gagnrýna umræðustjórann sem siglir á lygnum sjó eftir lofgerðina.

Reyndar fer Ingi með löndum í gagnrýni sinn á RÚV, en hjólar ekki í manninn eins og Egill. RÚV er með mörg óskilgreind hlutverk og í ljósi þess hve fá atvinnutækifæri eru fyrir ofurmenni í greininni kunna skrif þeirra að skýrast.

Annar áhrifamaður í pólitískri leikfimi, borgarstjórinn í Reykjavík hefur sent óbreyttum borgurum jólakveðjur í líki hauskúpu sem talar í stíl nýjustu hrollvekjukvikmynda með sprellikarlinn Gnarr í fanginu. Til Egils sendir hann hinsvegar jólakort með mynd af skautasvellinu í Reykjavík eins og það var fyrir margt löngu. Þakkar Agli fyrir góð samskipti á árinu.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband