18.1.2015 | 10:33
Hvenær veltur bíll?
Einu bílaóhöppin sem ég hef lent í eru vanmat á aðstæðum og ástandi ökutækis. Annað var bílvelta á holóttum Skeiðavegi á "höstum" Skoda. Hitt var á Bronco á Kjalarnesvegi þar sem vindhviða við Esjuberg kom undir aftanívagn. Skodi og Bronco II voru ekki albestu stöðugleika ökutækin á þeim tíma. Dómstólar í Bandaríkjunum dæmdu t.d. Ford verksmiðjunar til að borga milljónir dollara í skaðabætur til bílaeiganda sem óku útaf vegi. Það afsakar ekki klaufaskap minn og ofmat á ökutæki og aðstæðum.
Ólafur K Guðmundsson kunnáttumaður um akstur bloggar við þessa frétt og segir:
"Hér er þáttur fjölmiðla mjög mikilvægur. Maður sér alltof margar fréttir af alvarlegum umferðarslysum, sem allar enda með sama staðlaða niðurlaginu.:
"Örsök slysins er óljós. Lögreglan fer með rannsókn málsins".... Niðurstaðan kemur sjaldnast fram, nema um banaslys sé að ræða og þá frá Rannsóknarnefnd Samgönguslysa mörgum mánuðum seinna.
Orsök óhappanna á Reykjanesbraut eru ekki hálkan sem slík, heldur vanmat ökumanna á aðstæðum. Það veldur því að menn missa stjórn á bílnum. Hálkan ætti að minnka hættu á veltu frekar en hitt. Ástæða þess að bíllinn veltur er eitthvað annað og það kemur aldrei fram. Oftast veltur bíllinn ekki á veginum, heldur þegar hann fer útaf og lendir á einhverju við veginn eða þá í of bröttum fláa, eða falli fram af veginum.
Ég hef dæmt í kappakstri í tugum móta, þar sem menn aka á allt að 300 km. hraða á blautum og þurrum brautum. Þar hef ég orðið vitni að fjölda atvika, þar sem menn missa stjórn á bílum af öllum gerðum. Þeir hafa aldrei oltið þar sem ég hef verið, þar sem öryggissvæði brautanna eru þannig að hætta á veltum er nánast engin. Það er því hægt að koma í veg fyrir allar þessar veltur á Íslandi með því að hafa öryggissvæði vega þannig úr garði gerð að veltur séu sjaldgæfar."
Vegagerðin hefur gert stórátak í að betrun bæta Reykjanesbraut. Nýir ökumenn koma mun betur menntaðir út í umferðina í akstri en áður. Samt sem áður er aðalorsök umferðaslysa vanmat á aðstæðum og færð. Bílstjórar eru eins og skipstjórar á skipi, eiga að bera ábyrgð og fara ekki út í óvissuna. Slæmt að þurfa að læra af endurtekinni bitri reynslu.
![]() |
Þrjár bílveltur á sama tíma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
sigurfang.blog.is
Bloggvinir
-
hekla
-
sighar
-
thjodarskutan
-
esgesg
-
tilveran-i-esb
-
rabelai
-
krisjons
-
stinajohanns
-
kreppan
-
jonvalurjensson
-
jennystefania
-
elinerna
-
photo
-
vulkan
-
kermit
-
ipanama
-
svavaralfred
-
robertb
-
olafurjonsson
-
josira
-
bookiceland
-
kristjan9
-
shv
-
aslaugfridriks
-
stjornuskodun
-
don
-
arkimedes
-
einarborgari
-
apalsson
-
jobbi1
-
postdoc
-
geiragustsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.