9.2.2014 | 22:44
Alþjóðasamfélagið í liðsinni
Hingað koma öðru hvoru stór amerísk rannsóknarskip, eitt var í eigu eins eiganda Microsoft. Ekkert til sparað þar á bæ. Lítið eyríki hefur takmarkaðan mannafla og auð til að halda úti mörgum rannsóknarskipum. Stuðningur frá stærri þjóðlöndum eins og ESB er engin goðgá, samvinnuverkefni. Hvernig á ESB að vita hvað mikið er til af makríl eða hvert hann gengur nema að kosta hafrannsóknarskip. Sama er með síldina og kolmuna sem eru flökkufiskar.
Í fréttum í kvöld kom fram að ungt athyglisvert fyrirtæki Skema flytur til Bandaríkjanna með frumkvöðli sínum. Blóðtaka í mannvitsauði til hinna stóru landa verður ávallt vandamál smáríkis. Í Ameríku eru menn fljótir að sjá hvað telur. Þeir eiga auðvelt með að kaupa upp frumkvöðla og hafa náð mörgum íslenskum tölvufyrirtækjum til sín.
Skema hafði að markmiði að efla kennslu í forritun í grunn og framhaldskólum. Rökrétta hugsun sem ætluð var fyrst handa þeim börnum sem eru með athyglisbrest og lesblindu. Kannski eru þessi börn utangarðs vegna þess að þau sjá kerfisvillur. Það er ekki vænlegt ef fyrirtæki á borð við Skemu hverfi á vakt ráðherra sem vill umbætur. Vonandi sér menntamálaráðherra málin í öðru ljósi þegar hann kemur frá Sotsjí. Þar næst aðeins góður árangur með einbeitingu og stefnufestu. Gull, silfur og brons eftir miklar fórnir og áralanga þjálfun.
Bjarna Sæmundssyni lagt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
sigurfang.blog.is
Bloggvinir
- hekla
- sighar
- thjodarskutan
- esgesg
- tilveran-i-esb
- rabelai
- krisjons
- stinajohanns
- kreppan
- jonvalurjensson
- jennystefania
- elinerna
- photo
- vulkan
- kermit
- ipanama
- svavaralfred
- robertb
- olafurjonsson
- josira
- bookiceland
- kristjan9
- shv
- aslaugfridriks
- stjornuskodun
- don
- arkimedes
- einarborgari
- apalsson
- jobbi1
- postdoc
- geiragustsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.