Reyfarakennd atburðarás

Amerísk stjórnmál virðast taka óvænta stefnu þegar minnst varir. Af hverju rússneskir tölvuþrjótar? Obama þakklátur? Margur er knár þótt hann sé smár. Debbie Wasserman er snaggaraleg og tekur á sig ábyrgð á tölvupósti flokksmanna.

Hvað ef Trump sigrar í kosningabaráttunni og skilur Hillary Clinton eftir utangarðs. Þá hafa flokksmenn Demókrata tapað tvisvar. Bernie Sanders var á tímabili talinn líklegri til að sigra Trump. Trump er nú sigurstranglegur og vinnur á.  


mbl.is Segir af sér vegna tölvupóstanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju svona erfitt?

Fjölmiðlar ættu að getað glaðst yfir framtaki og áhuga Hollendinga á að reisa hér sjúkrahús. Nýr spítali getur breytt miklu. Skapað fleiri störf og létt álagi á ríkisreknu spítalakerfi sem hefur átt í þróunarerfiðleikum.

Hér er rekin frábær heilbrigðisþjónusta, en er nokkuð að því að hún sé aukin með nýjum spítölum. Þarf að draga fram gamlar Marxistaklisjur um að hér sé verið að ráðast á ríkisrekstur?

Hjartavernd er með aðstöðu í Kópavogi í glæsilegu húsnæði. Í Noregi er verið að reisa 30.000 m2 spítala fyrir hjarta og lungnasjúka. LHL samtök hjarta og lungnaveikra munu leigja spítalann sem staðsetur er við Gardemoenflugvöll.

Hér er atvinnufrelsi, takmarkað fjölmiðlafrelsi og ójöfn samkeppni. Stjórnmálamenn virðast eiga erfitt með að skilja það og veita RÚV sérstöðu og forgang á auglýsingamarkaði. Landspítalinn hefur sérstöðu í sjúkrahúsamálum, en hér eins og annarstaðar breytist hlutverk ríkisins, þótt hægt gangi.

Frumkvæði Mosfellinga í spítalamálum breytir stöðunni. Á fyrirhugaðri lóð er fallegt nær umhverfi. Reykjalundur rétt hjá þar sem áhugamenn í samvinnu við ríkið gera stórt í endurhæfingu. Ef það hentar að tala um sjúkrahúsmál undir rós verður svo að vera. Landlæknir kýs ekki að fara í feluleik um málefnið eins og stjórnmálamenn.  

 

Birdseye-09.05.2016_nett-2000x1126


mbl.is Heyrði fyrst af áformunum í fréttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 24. júlí 2016

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband