1.6.2024 | 14:17
"Nytsamur sakleysingur" á kjördegi?
Nýjar kynslóðir eru að kjósa í fyrsta sinn í dag og vita misjafnlega mikið um ógnir kommúnista sem stjórna Rússlandi í dag, með einræði og takmörkuðu málfrelsi.
Það er ekki langt síðan öfgamenn í Rússlandi hótuðu að gera Íslandi að rússnesku fangelsi, fanganýlendu að hætti Gúlagsins. Þeir Íslendingar sem hafa farið til Rússlands á dögum vöruskiptaverslunar og í dag ferða menn á vegum ferðaskrifstofunnar Bjarmalands vita hve frelsið í dag er takmarkað við Volgubakka.
Það er því dapurlegt að vita að einstaka útvarpsstöðvar eða fjölmiðlar skuli lofa árrásarstefnu Rússa sem birtist í Úkraínu í dag. Hvað þá hlusta á einstaka forsetaframbjóðendur sem trúa því að þeir geti farið með hvítan samningsfána til Kreml og samið um frið í Austur Evrópu. Málfrelsi er einnig takmarkað í Georgíu af ráðandi stjórnmálamönnum handgegnir Rússum. Þessi lönd eiga bæði landsvæði að Svartahafi og hafa það sameiginlegt að Rússnesk stjórnvöld sækjast eftir yfirráðum í landi þeirra.
Almenna Bókafélagið gaf út á sínum tíma bók undir heitinu Nytsamur Sakleysingi, "Jeg var Sjovetspion" eftir Norðmanninn Otto Larsen. Hann trúði á skipulag kommúnista í Rússlandi á stríðsárunum, en var síðan varpað í margra ára þrælkunarvinnu í Gúlaginu. Bókin var þýdd af Guðmundi G Hagalín og endurútgefin 2017 í minningu Eyjólfs K. Jónssonar. Þess má geta að á árunum eftir stríð voru þeir sem trúðu blint á Sovétið oft nefndir "málpíur Kremlvaldsins" eða Rússadindlar.
![]() |
Halla efst í veðbönkum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
sigurfang.blog.is
Bloggvinir
-
hekla
-
sighar
-
thjodarskutan
-
esgesg
-
tilveran-i-esb
-
rabelai
-
krisjons
-
stinajohanns
-
kreppan
-
jonvalurjensson
-
jennystefania
-
elinerna
-
photo
-
vulkan
-
kermit
-
ipanama
-
svavaralfred
-
robertb
-
olafurjonsson
-
josira
-
bookiceland
-
kristjan9
-
shv
-
aslaugfridriks
-
stjornuskodun
-
don
-
arkimedes
-
einarborgari
-
apalsson
-
jobbi1
-
postdoc
-
geiragustsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.