2.12.2017 | 07:38
Samkeppni ríkir og rekstur er fallvaltur
Sætindin og jólaskrautið í Costco er yfirgengileg. Ungir og gamlir fylla kerrur af stórum kínverskum böngsum, jólaljóskerum og konfekti. Viðbúið var að verslunin Kostur myndi þykja krambúðaleg hjá kaupglöðum Íslendingum samanborið við ameríska risann.
Vöruvalið í Costco hefur talsvert breyst og nýjabragðið er að fara af versluninni. Það sem stendur upp úr eru vörur þar sem samkeppnin var minnst. Vörur sem eru gæðameiri og verð lægra á markaði. Þannig virkar frjáls samkeppni.
Því er ekki að heilsa hjá mörgum opinberum rekstri, einkum eftirlitsiðnaðinum sem lifir sínu eigin lífi. Þar sem ekkert val ríkir meðal þeirra sem eru settir undir hið nýja vald.
Er ný ríkisstjórn líkleg til að setja einhver takamörk á hina nýju stétt. Mun Lilja gera uppskurð á ríkisútvarpinu? Mun ráðherrann auka flóru fjölmiðla og skapa val hjá landsbyggðafólki sem hefur nær eingöngu "Okkar allra".
Undanfarið hefur hver fjölmiðillinn á fætur öðrum gefið upp öndina eða færst til blokka. Einkarekstur á í stöðugri baráttu við að halda velli. Mun hin nýja "stöðugleikastjórn" sjá um að jafnræðist sé gætt eða auka miðstýringu?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
sigurfang.blog.is
Bloggvinir
- hekla
- sighar
- thjodarskutan
- esgesg
- tilveran-i-esb
- rabelai
- krisjons
- stinajohanns
- kreppan
- jonvalurjensson
- jennystefania
- elinerna
- photo
- vulkan
- kermit
- ipanama
- svavaralfred
- robertb
- olafurjonsson
- josira
- bookiceland
- kristjan9
- shv
- aslaugfridriks
- stjornuskodun
- don
- arkimedes
- einarborgari
- apalsson
- jobbi1
- postdoc
- geiragustsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.