16.4.2017 | 00:39
Stórmynd um mannvonsku og þrautsegju. Ríka landið í norðri
Varsjá er stórborg með sögu við hvert fótmál. Marga alda stríð við landamæri Póllands hefur sett sín mörk á þrautseiga þjóð. Þjóðverjar höfðu lengi alið á þeirri bábilju að Pólverjar væru latir og værukærir.
Náin kynni Íslendinga við Pólverja á síðustu árum hefur sýnt okkur að hingað koma innflytjendur sem eiga tiltölulega auðvelt með að aðlaga sig. Ríka landið í norðri virðist ekki vera eina áskorunin fyrir Pólverja. Niðurlæging og harðæri marga alda hljóta að vera eitthvað sameiginlegt með þessum þjóðum. Eitthvað sem skýrir góða tengingu við hina tiltölulega mörgu innflytjendur. Kaþólsk trú tengir einnig löndin.
Þegar ég kom fyrst til Póllands var þar kalt og allt umhverfið Stalínískt. Lítið um mat og allt í hlekkjum kommúnista. Þangað sóttum við járn og komum með síld. Stalín færði pólsku þjóðinni að "gjöf", hæstu byggingu Póllands 1955. Höll menningar og vísinda; Palac Kultury.
Margir Pólverjar vilja helst að byggingin verði jöfnuð við jörðu. Aðrir telja að byggingin sé ómissandi til að upplýsa komandi kynslóðir um harðæri einræðisherra. Grimmileg örlög gyðinga í Póllandi á tímum nasista yfirgnæfa alla aðra áþján.
Saga eiginkonu dýrahaldarans er enn ein áminningin um að Evrópa var á barmi tortímingar aðeins fyrir nokkrum áratugum. Engin furða þótt Mið-Evrópa reyni að tengjast böndum til að halda friðinn í álfunni.
Best að leynast undir ljósastaur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
sigurfang.blog.is
Bloggvinir
- hekla
- sighar
- thjodarskutan
- esgesg
- tilveran-i-esb
- rabelai
- krisjons
- stinajohanns
- kreppan
- jonvalurjensson
- jennystefania
- elinerna
- photo
- vulkan
- kermit
- ipanama
- svavaralfred
- robertb
- olafurjonsson
- josira
- bookiceland
- kristjan9
- shv
- aslaugfridriks
- stjornuskodun
- don
- arkimedes
- einarborgari
- apalsson
- jobbi1
- postdoc
- geiragustsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.