26.12.2012 | 12:32
Jólakveðjur og hinir bestu
Egill Helgason prísar besta blaðamann allra heima, Inga Freyr Vilhjálmsson ritstjóra DV 7. des. á Eyjunni: Vel skrifandi með ófáar afhjúpanirnar sem tengjast hruninu. Hinn sami Ingi er ekki jafn hrifinn af því trausti sem RÚV mælist með í könnunum. Segir hann stofnunina hafi verið á villigötum í fréttaflutningi og ekki stundað sjálfstæðar rannsóknir eða djúpar athuganir á þjóðfélagsmálum. Telur hann að traustið sem RÚV nýtur dýrkeypt í leiðara 17. des. Þannig talast þeir á hinir bestu. Ritstjórinn forðast að gagnrýna umræðustjórann sem siglir á lygnum sjó eftir lofgerðina.
Reyndar fer Ingi með löndum í gagnrýni sinn á RÚV, en hjólar ekki í manninn eins og Egill. RÚV er með mörg óskilgreind hlutverk og í ljósi þess hve fá atvinnutækifæri eru fyrir ofurmenni í greininni kunna skrif þeirra að skýrast.
Annar áhrifamaður í pólitískri leikfimi, borgarstjórinn í Reykjavík hefur sent óbreyttum borgurum jólakveðjur í líki hauskúpu sem talar í stíl nýjustu hrollvekjukvikmynda með sprellikarlinn Gnarr í fanginu. Til Egils sendir hann hinsvegar jólakort með mynd af skautasvellinu í Reykjavík eins og það var fyrir margt löngu. Þakkar Agli fyrir góð samskipti á árinu.
Um bloggið
sigurfang.blog.is
Bloggvinir
- hekla
- sighar
- thjodarskutan
- esgesg
- tilveran-i-esb
- rabelai
- krisjons
- stinajohanns
- kreppan
- jonvalurjensson
- jennystefania
- elinerna
- photo
- vulkan
- kermit
- ipanama
- svavaralfred
- robertb
- olafurjonsson
- josira
- bookiceland
- kristjan9
- shv
- aslaugfridriks
- stjornuskodun
- don
- arkimedes
- einarborgari
- apalsson
- jobbi1
- postdoc
- geiragustsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.