1.10.2011 | 17:09
Spara ætti ráðleggingar
Kokhraustur er fjármálráðherra sem nýbúinn er að afhenda hrægömmum Obama húsnæðislán íslenskra launamanna til innheimtu. Eggjahríð frá óánægðum kjósendum virðist ekki bíta á karl, sem telur aðgerðir sínar á heimsmælikvarða. Dramb er falli næst, eins og sýndi sig þegar útrásarmenn töldu sig búa á fjármálaeyju byggðum snillingum. Yfirburðamaðurinn Steingrímur ætti að sýna umheiminum hvernig hann býr til tölur um atvinnuleysi og hagvöxt. Veit fjármálaráðherra ekki að þegar hann hækkar skatta um eitt prósent verður samdráttur upp á 3 prósent.
Steingrímur vill aðstoða Obama | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
sigurfang.blog.is
Bloggvinir
- hekla
- sighar
- thjodarskutan
- esgesg
- tilveran-i-esb
- rabelai
- krisjons
- stinajohanns
- kreppan
- jonvalurjensson
- jennystefania
- elinerna
- photo
- vulkan
- kermit
- ipanama
- svavaralfred
- robertb
- olafurjonsson
- josira
- bookiceland
- kristjan9
- shv
- aslaugfridriks
- stjornuskodun
- don
- arkimedes
- einarborgari
- apalsson
- jobbi1
- postdoc
- geiragustsson
Athugasemdir
Ég held að "yfirburða maðurinn" Steingrímur J, viti yfir höfuð ekki neitt.
Eggert Guðmundsson, 1.10.2011 kl. 17:49
Sæll Eggert
Yfirburðir geta verið með ýmsu móti. Við þingsetningu í dag virtist sem ráðherrann væri yfirbugaður, en litlu síðar er hann orðinn snillingur í eigin orðræðu og aðgerðum. Slík yfirtök er réttlætanlegt að setja inn í gæsalappir eins og þú gerir. Fyrir áramót hækkaði hann alla skatta um mörg prósentustig og verðbólgan lét ekki á sér standa. Við erum að bíta í það súra epli núna með hækkuðum vöxtum. Skattaaðgerðir Steingríms eru ekki eyland, heldur hafa margvísileg áhrif.
Sigurður Antonsson, 1.10.2011 kl. 22:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.