Færsluflokkur: Sjónvarp
28.11.2010 | 20:59
Hamskiptin í New York
Fáar leiksýningar skilja áhorfandann eftir jafn forviða og Hamskiptin í uppfærslu Gísla Ö.Garðarssonar og Davids Farr í Þjóðleikhúsinu. Bókin Umskiptin er þunglamaleg lesning en góður formáli og nálgun fyrir þessa einstæðu sýningu sem tekur bókverkið á loft og færir leikhúsgestinn að fótum veruleikafirringar Kafka. Hvort sem sagan er sjálfsævisöguleg eða partur af skrímslinu í manninum skiptir ekki máli. Leikverkið gert upp úr sáldsögunni Umskiptin lætur engan ósnortinn og ætti að varpa ljósi á tilveru hvers manns. Ekkert verka Kafka hefur kallað á jafn margar skýringar og túlkanir.
Nú er sýningin og hinir frábæru leikarar komnir til New York. Evrópa hefur tilkynnt leikhópnum um verðug leiklistaverðlaun og nú er að sjá hvort New Yorkbúar hafi sama áhuga á hinni nýstárlegu uppsetningu. Peningavélin í New York, verðbréfadrengirnir, sölumennirnir og gyðingarnir ættu allir að getað séð sig í nýju ljósi. Hinar öguðu hreyfingar Gísla sem verða partur af húshlutunum færa okkur nær firringunni sem finna má í leit nútíma mannsins við að komast út úr öngstræti. Hvort það er ástin, tískan eða peningarnir sem krefjast skilyrðislausra hlýðni við markmiðið þá verður liðsheildin að hafa forgang þótt maðurinn verði undir. Skrímslið tekur á sig ýmsar myndir þegar einhver sker sig út úr fjöldanum, eða fer ekki að vilja fjölskyldunnar. Þá getur allt umturnast.
"Hreinsum meindýrið burt úr samfélaginu" segir leigjandinn í leikritinu. Þegar gyðingur segir það hefur setningin mun dýpri merkingu. Hamskipti Kafka árið 1912 hafa löngum þótt spádómsýn á það sem koma skal. Ný bygging í grunni turnanna tveggja heldur áfram að rísa í New York þótt einstaklingar eins og Gregor hafi þurft að deyja. Margir hafa hafnað löngu fyrir tímann í rósagarðinum án þess að neinn hafi fundið haldbæra skýringu.
Rósagarðurinn sem kemur í lok sýningar Þjóðleikhússins skildu ekki allir, en einkenni margar góðra listverka er tvíræðni, undir rós. Skrímslið getur líka verið hernaðarvélin, örlög gyðinga í seinni heimstyrjöldinni eða lánaskrúfan þegar hún tekur á sig óhugnanlegustu myndir eftir að farsælar lausnir duga ekki til að bjarga málum. Í sögu Kafka er það einstaklingur sem umbreytist í óþekkta stærð eins og hinn geðsjúki sem tekur sig út úr, spilar ekki lengur með. Hvort ritun sögunnar hefur bjargað Kafka frá því að sturlast er ekki vitað, en ævi hans er skammvin og dapurleg sem mikils listamanns. Umskiptin eru hið óvænta og óhugnanlega, hluti af sjálfu lífinu sem tekur sífellt óvæntum breytingum til að aðrir megi komast af.
Elítan í New York sem samanstendur af gyðingum og miklu hæfileika fólki fær nú að líta á leikverk Gísla og hún mun hafa sínar skoðanir á hans efnistökum. Fáar sýningar eru í boði og engin hætta á að gagnrýnandi New York Times, Ben Ratliff setji okkar listamenn út af laginu. Hér er saga um gyðing og á margan hátt er hún spegilímynd af örlögum þeirra sem ekki eiga gott með að aðlagast í fjölskyldu eða öðrum þjóðfélagshópum.
Útlaginn rússneski og sagnaskáldið Valdimir Nabokov, frægasti aðdáandi Kafka hefur túlkað ritverk hans í Bandaríkjunum á eftirminnilegan hátt. Leikin myndbönd á You Tube eru ekki síður áhugaverð. Bandaríkjamenn kunna að koma því sem þeir vilja til nýrra kynslóða í listrænu og spennandi formi, hvort sem er á netinu, háskólum eða í leikhúsinu. Góð saga af sölumanni deyr aldrei.
Tilvísun: Leikhús.is Ástrós Elísdóttir, leikhúsfræðingur, Fréttatíminn,
http://www.you tube: Valdimir Nabokov og Kafka
The Brooklyn Paper:
Its probably the hardest thing I have done in my whole life, said Gardarsson. The more awkward, and thus hard, [the movements], the better it seemed to look. Every morning after a performance when I wake up, I feel like Ive been hit by a train.
Sjónvarp | Breytt 15.10.2011 kl. 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2010 | 20:25
Utangarðslegur borgarstjóri
![]() |
Fyrsta landnámskonan á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjónvarp | Breytt 3.11.2010 kl. 05:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
sigurfang.blog.is
Bloggvinir
-
hekla
-
sighar
-
thjodarskutan
-
esgesg
-
tilveran-i-esb
-
rabelai
-
krisjons
-
stinajohanns
-
kreppan
-
jonvalurjensson
-
jennystefania
-
elinerna
-
photo
-
vulkan
-
kermit
-
ipanama
-
svavaralfred
-
robertb
-
olafurjonsson
-
josira
-
bookiceland
-
kristjan9
-
shv
-
aslaugfridriks
-
stjornuskodun
-
don
-
arkimedes
-
einarborgari
-
apalsson
-
jobbi1
-
postdoc
-
geiragustsson
Myndaalbúm
Af mbl.is
Innlent
- Málið enn til rannsóknar
- Ísland taki þátt í alþjóðlegum verkefnum ESB
- Vinna að nýjum skóla fyrir einhverf börn
- Keppnin skili hundruðum milljóna í þjóðarbúið
- Við munum ekki sitja hljóð og horfa á
- Almenningur fær að fara til Grindavíkur
- Gæti lokið í dag, á morgun, eða eftir nokkra daga
- Tilkynnt um þjófnað í fjórum verslunum
- Tveir á slysadeild eftir árekstur á Hringbraut
- Umsókn Íslands enn í gildi
Erlent
- Kveikti í 17 ára kærustu sinni á Kanaríeyjum
- Ætla að halda hátíðina þrátt fyrir brunann
- Ítök gervigreindar innan stjórnsýslu gætu aukist
- Fara fram á eins dags dóm í máli Breonnu Taylor
- Trump greindur með langvinna bláæðabilun
- Hersveitirnar horfnar á braut
- Grunaður um að afhenda gögn úr þjóðskrá
- Mannskæður eldsvoði í verslunarmiðstöð
- Leystu upp þekktan hóp netþrjóta
- Aðalsvið Tomorrowland gjöreyðilagðist
Fólk
- Fagnaði tilnefningunni með nektarmynd
- Leitar enn að týndum verkum móður sinnar
- Baumgartner látinn eftir slys á Ítalíu
- Framhjáhald forstjóra afhjúpað fyrir slysni af Coldplay
- Karl og Kamilla brjóta blað í sögu sjóhersins
- Eiga von á barni eftir nokkurra mánaða samband
- Connie Francis látin
- Útgáfa af Ofurmanninum sem heimurinn þarf á að halda
- Veistu raunveruleg nöfn stjarnanna?
- Sonur Madsen minntist föður síns
Íþróttir
- Þurfum að moka inn stigum
- Þá var hann sendur með sjúkrabíl
- Þess vegna er ég hérna
- NFL-meistari látinn 38 ára
- Mikil hvatning fyrir mig
- Kannski gerðum við það sjálfir
- Suðurnesjaliðið upp fyrir KR
- Tókum ekki neinn séns með Gylfa
- England í undanúrslit eftir vítakeppni
- Ætluðum ekki að verja eitt eða neitt
Viðskipti
- Skagi sér tækifæri í samþjöppun á fjármálamarkaði
- 66° Norður kynnir nýja liti af sjóstökkum
- Verðbólga hækkar í 3,6% í Bretlandi
- Mikil vaxtartækifæri í tölvuleikjaiðnaði
- Eining meðal hluthafa um þessa leið
- Hægir á verðhækkunum
- Undirliggjandi rekstur Arion sterkur
- Fór á lista yfir vinsælustu hlaðvörp Svíþjóðar
- Vaka nýr vörumerkjastjóri Collab
- Spilað á ónýtum velli