Bræðralagið flokkur Giorgíu Meloni

Það þættu tíðindi hér ef flokkur einstæðra móður næði yfir 25% fylgi í kosningum. Merkilegt við Bræðralag Ítalíu, hins nýja hægri flokks er að stofnandinn hefur verið ráðherra í ríkisstjórn Berlusconi. Yngsti þingmaður Ítalíu 2008, þá þrjátíu og tveggja ára og þótti standa sig vel.

Að hún fari fram með eigin flokk nú bendir til að hún ætli að ná enn lengra og taka með sér enn meira fylgi óánægðra kjósenda. Kjósendur sem koma úr öllum stéttum þjóðfélagsins. Silvio Berlusconi, nú 85 ára náði að mynda ríkistjórn fjórum sinnum undir merki flokksins Forza Italia: Fram Ítalía , óvenju þrautseigur stjórnmálamaður sem enn mun væntanlega mynda ríkistjórn með Meloni?

Stríðið í Úkraínu kann að breyta miklu um hug kjósenda á Ítalíu, sem óska eftir tryggu heimalandi og öryggi fjölskyldna. Hvar væntanleg ríkisstjórn Meloni tekur stefnu í utanríkismálum er ekki nákvæmlega vitað, en trúlega forðast Meloni að binda sig böndum með hægristefnu sem höfða til fárra.

Liz Elizabeth Truss forsætisráðherra Bretlands og Meloni eiga það sameiginlegt að vera á svipuðum aldri. Fara báðar fram á hinn pólitíska völl ótrauðar fullar af sjálfstrausti. Eiga enn eftir að fara í gegnum pólitíska eldskírn á erfiðum tímum og raska ró vinstri manna.

 


mbl.is Bræðralag Ítalíu leiðir í útgönguspám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband