Ekkert grímugrín. Vel meinandi ráðherrar

Mikill og góður árangur í veiruvörnum líkt og hjá fámennum nágrönum. Færeyingar, Grænlendingar og Ísland á toppnum. Samt sem áður vantar eitthvað eða erum við einungis síóánægð? Krafa er um enn meiri sóttkví og einangrun í farsóttarhúsi á sama tíma og takmörkunum er aflétt.

Andstæðurnar eru miklar. Ekki er langt síðan ráðherrar í ríkisstjórninni kröfðust þess að stjórnendur á Filippseyjum yrðu rannsakaðir vegna ofbeldisbrota að frumkvæði Mannréttindanefndar Sameiniðuþjóðanna. Eins og til að sanna að hér byggi friðelskandi þjóð sem væri í forystuhlutverki. Vakandi yfir mannréttindum í Asíu, rétt eins og í heimalandinu? 

Vantar virkilega heimildir til að handtaka fólk og fara með það í yfirheyrslur að nóttu til eins og lesa má í endurteknum fréttum dagsins?

Hér hefur verið vani að handtaka fólk í skammdeginu og boðsenda ákærur eða niðurstöður á rannsóknum að kvöldi. Desember og dagarnir fyrir jól hafa verið sérlega vel nýttir í þessum efnum. Tryggvi Rúnar Leifsson var handtekinn á Þorláksmessu fyrir 45 árum. Ungur maður, settur saklaus í 600 daga einangrun og dæmdur til langra fangelsisvistar. Nærri 40 ár liðu þar til hann fékk leiðréttingu mála. Arnar Þór Stefánsson, lögmaður ritaði athyglisverða grein um val á dómara í máli samfanga Tryggva í mars 2020 þar sem bótakröfu var hafnað. Fáránleikinn tvímálaður.

Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður var með grein í Morgunblaðinu 2010 sem hét "Vel meinandi mannfyrirlitning." Pistli hennar lauk þannig "Það ber að fagna því að í embætti umboðsmanns Alþingis sé hugsandi maður sem er ekki tilbúinn að ganga braut rétttrúnaðar þar sem einstaklingar eru hiklaust sviptir persónufrelsi vegna óljósra heildarhagsmuna.

Vafalaust finnst mörgum að innrás eins og sú sem gerð var í Tækniskólann hafi verið ósköp saklaus vegna þess að tilgangurinn hafi verið góður og þeir sem stóðu fyrir þessum gjörningi séu vel meinandi."

 

 


mbl.is „Við verðum að fara mjög varlega“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband