Stórbrotið landslag sem Jónas og Kjarval lofsungu

Grátlegt að bændur sjái ekki um að hætta allri beit á hálendinu. Ef þeir eru að fara á svig við reglugerðir um vottun er málið enn alvarlegra. Bændur hafa haft samúð hjá bæjarbúum vegna samdráttar í neyslu lambakjöts, en hætt er við að þeir glati henni ef fram heldur sem horfir.

Jóhann vinnur lofsvert starf í sjálfboðavinnu. Öll öræfi við Þóris- og Langjökull eru áhugaverð útivistarfólki. Skjaldbreið leynir á sér með mosavöxnum gróðri og stórum hraunhellum  langleiðina upp að gíg. Útsýni af toppnum er stórkostlegt, fjallganga í nágreni Þingvalla sem alltof fáir stunda.

Landslagið norðan vegar hefur verið eins og grásvartur sandur og eyðilegt. Menn voru hættir að trúa því að þarna gætu átt sér stað breytingar. Gróðursæll girtur reitur við Bláfell sem liggur mun hærra afsannar þessar ranghugmyndir. Þjóðarskáldið Jónas og málarinn Kjarval eiga heiðurinn af því að hafa vakið heilar kynslóðir til vitundar um töfra hálendisins.

Kindur

 


mbl.is Grátlegar skemmdir á landinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband