"Afglöp Hæstaréttar" og fræðirit Jóns Steinars

Tvær kiljubækur í flokki upplýsingarita eru tiltölulega nýkomnar út. Önnur prentuð á hvítan 100 gr. "Munken Pure" pappír en hin á endurunninn umhverfisvænan í anda frægs Parísarsamkomulags.  Með lognið í fangið eftir Jón Steinar Guðlaugsson lögmann og fyrrverandi hæstaréttardómara. Hin bókin er Fyrstu forsetarnir eftir Guðna Th. Jóhannesson forseta. 

Bók Jóns er fagurlega myndskreytt af ýmsum listamönnum. Bókakápa í sterkum litum átaka og umbrota en forsetabókin birtist í sjaldgæfum grænum lit hafsins. Ekki fjarlægum bláum lit konunga, heldur grænhvítur farvi, tákn um grósku og nýjabrum?

Leturgerð á bókakápu Jóns Steinars er með sígildri ný steinskrift. Læsilegir upphafs og lágstafir, hvítir á svörtum grunni, táknrænt letur fyrir álfabrennu og átök. Smærra letur "um afglöp Hæstaréttar" í eldhafi. Bókakápan sem höfðar til yngri og eldri lesenda vekur athygli fyrir skýra framsetningu.

Leturgerð á kápu bókar forsetans er rómverskt fagurletur en hvítir stafirnir á grænum frostfreðnum graslit stinga í augun. Táknmynd Sögufélagsins saltfiskurinn óskýr og eins vekur upp spurningar hversvegna bókin er í ritröð smárita Sögufélagsins. Óspennandi bókakápa gæti útskýrt látlaust umbrot fræðibóka. Bóka sem eru unnar fyrir almannafé og þurfa ekki að keppa um athygli á bókamarkaði eða vera kostaðar af höfundi. 

Báðar bækurnar eru skemmtilegar til aflestrar og fræðandi. Hver með sínum stílbrigðum og áherslum. Annar höfundurinn nýsestur í forsetastól en hinn nýkominn í land eftir holskeflu hrunmála. Hispursleysi og þörf höfunda fyrir að fræða og upplýsa er sameiginlegt með báðum bókunum. 

 

Fleyg ummæli Guðbjörns Guðbjörnsson söngvara og tollvarðar: "Sennilega hafa þessir fjölmiðlar ekki þorað því, vegna stjórnmála og fjárhagslegra tengsla. Þeir sem þora að segja sannleikann hér á landi er yfirleitt refsað. Það er því gott að vera kominn á þann aldur að geta sagt sannleikann umbúðalaust."

Meira síðar ef almættið lofar. SA. helgarbloggari

 


mbl.is „Lágkúruleg“ umræða á lokuðum fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband