Leiðtogar taki áhættu. Sigmundur farsæll, skapaði hér góðæri með Sjálfstæðisflokki.

Dýrmætasta hverjum flokki eru góðir leiðtogar. Þeir geta lyft grettistaki hafi þeir hugrekki til að takast á við sundrungaröfl. Framsókn er flokkur hnífa og innanhúsátaka. Þegar farsæll leiðtogi sér það eina úrræði að yfirgefa flokkinn er það dapurlegt. Hann gæti gengið í Sjálfstæðisflokkinn eða myndað annað stjórnmálaafl.

Samvinnuflokkurinn.is er ekki vænlegt heiti á nýjum flokki. Þurfum ekki fleiri stjórnmálaflokka, en sé stefnan skýr getur nýr stjórnmálflokkur fundið sér farveg. Marcon í Frakklandi var vel tekið þar sem hann hafði lausnir á hraðbergi. Hann getur tekist á við úrelta vinnulöggjöf og fékk stuðning hægri og miðjuafla. Shröder kanslari í þýskalandi kom á breytingum á vinnumarkaði fyrir aldamót. Merkel býr að kristilegum grunni og er eins klettur í stjórnmálum. Í Þýskalandi treysta menn ekki á smáflokka og þekkja afleiðingar sundrungar.

Gjörbreytt fjölmiðlaumhverfi á Íslandi hefur skapað óvissu í stjórnmálum. Ofurvaxnir ríkismiðlar leika lausum hala. Enginn stjórnmálamaður virðist ætla að taka á þessum vanda. Sjálfstæðisflokkurinn hefur fylgi í hlutfalli við stuðning í fjölmiðlum. Vinstri grænir hafa Ríkisútvarpið með sér og vita hvernig þeir geta "nýtt" sér það. 

Styrkleiki Sigmundar er yfirsýn á efnahagsmálum, hefur lausnir sem hann var tilbúinn að takast á við. Nýjar kauphækkanir með óbreytta vinnulöggjöf er ávísun á háa vexti og verðbólgu. Hægt er að glutra niður velgengni á skömmum tíma ef menn sjá ekki fyrir hætturnar. Næstu kosningar munu verða afdrifaríkar í þeim efnum.

 


mbl.is Sigmundur Davíð hættir í Framsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband