Þess sem ekki er getið

Ekkert um jöfnun atkvæðisréttar. Áherslur flokkanna einkennast af miðjumoði og óljósri atkvæðaleit. Engar ráðstafanir til að lækka vexti og skapa jöfnuð á húsnæðismarkaði. Formaður sjálfstæðismanna er með frumvörp full af ívilnunum til þeirra sem vilja vera í styrkjakerfi.

 

Umhverfisráðherra sagðist ætla að hækka gistináttagjald sem einungis hluti ferðamanna greiðir. Ekki er að sjá að sú hækkun sé í þessari upptalningu enda óvinsæll skattur. Skattar á gistingu eru hærri hér á landi en í Noregi.

Ekkert frumvarp er um aukna menntun til handa fólki sem vill taka þátt í ferðamennsku. Engin sérskóli fyrir hótelrekstur eða stærsta atvinnuveginn annað en matreiðslu og þjónaskóli?

 

Ekkert frumvarp frá menntamálaráðherra um jöfnun samkeppnisaðstöðu á fjölmiðlamarkaði? Nú þegar ljóst er að stærstu fjölmiðlarnir, Ríkissjónvarpið og 365 miðlar eiga mestan þátt í núverandi stöðu á Alþingi og styttingu kjörtímabilsins er þörfin brýn.

 


mbl.is Málaskrá ríkisstjórnarinnar birt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ekkert heldur um afnám verðtryggingar, heldur ætlar ríkisstjórnin þvert á móti að auka útbreiðslu verðtryggingar með því að leyfa gengistryggingu (þ.e. gjaldeyrisfölsun).

Guðmundur Ásgeirsson, 24.4.2016 kl. 15:36

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Það hefðu allir átt að vita að afnám verðtryggingar yrði andvana um leið og Sigmundur Davíð lét af starfi forsætisraðherra og sjúkrahús bygging á Vífilsstöðum fylgir með.

Ef fólk býst við að Bjarni Ben geri eitthvað fyrir öryrkja og aldraða, þá er það mjög mikill misskilningur.

Kveðja frá Las Vegas

Jóhann Kristinsson, 24.4.2016 kl. 15:50

3 Smámynd: Sigurður Antonsson

Sælir félagar

Stærsta kjaramálið er lækkun vaxta og stöðugt gengi. Seðlabankinn ætti að getað tryggt stöðugt gengi með mörgum úrræðum. Jafnframt því að stjórnvöld haldi útgjöldum í skefjum. Það hlýtur að vera ígildi verðtrygginga. Af hverju þarf þetta að vera svona flókið á Íslandi?

Forsætisráðherra er sá sem ræður för. Ef allt er gefið eftir af kröfum stjórnarandstöðu og kosningum flýtt er verið að ganga á lýðræðisleg réttindi. Versta við íslensk stjórnmál er lýðskrumið. Leikaraskapurinn sem einkennir Alþingi, þingsköp og kosningar.

Skynsamleg og hagkvæm bygging spítala fjarri miðbæjarskarkala er kannski dæmi um hvað illa gengur að fá niðurstöður. Ríkisstjórninni hefur tekist margt vel til, samt skal hún fara á brott fyrir tímann.

Sigurður Antonsson, 24.4.2016 kl. 18:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband