Krossberi með góða innivinnu

Jón Gnarr er hreinskilinn fjölmiðlamaður fram í fingurgóma. Hann sá tækifæri í borgarstjórninni og staðsetti sig milli krosstrjáa. Alltaf fannst manni eins og hann bæri jafnan mörg krosstré. Hann hélt því fram að hann gæti bætt viðræðurnar í borginni. Aukið hinn mannlega þátt. 

Fuglabúrin og steinblómin við Hofsvallagötu var hans krossferð, þar fylgdi hann stefnu og kalli meðreiðasveina í borgarstjórninni. Frá Núpi fór hann sem krossberi og útlistar bölvun þess í bók sinni að hafa komið þar við.

Saga hans er eins og kvöldstund á bensínstöð, röð af atvikum þar sem hver hefur sinn drösull að draga. Skemmtilegastur var hann í kjólfötum kórdrengsins, raunalegur og leitandi svipur hans var fullur eftirvæntingar. Dragdrottningar voru hans uppáhald og kærkomin uppákoma sem vakti jafnhraðan spurningar hins óbreytta áhorfanda.

Forsetinn situr ekki í manni sem hefur fengið sitt hlutverk í afþreyingariðnaði. Alltaf hélt maður að Ameríkuferð Jóns myndi afhjúpa leyndardóma grínistans sem lagði land undir fót. Hann bauð svo sannarlega heiminum birginn. Góðir trúðar eru þjáningafullir og varpa upp fullt af spurningum. Jón Gnarr er einn af þeim. Sannur eins og eftirnafnið gefur til kynna.

 


mbl.is Jón Gnarr er „til alls vís“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband