Hófleg gjaldtaka, gistigjaldið burt

 

Þjóðgarðar ættu að hafa þjónustu og  upplýsingaskyldu.  Hægt væri að taka gjald fyrir helstu staðina sem gilti inn á minni svæði eins og við Dyrhólaey. Hreinlætisaðstaða ætti að vera lágmarkskrafa á þeim stöðum sem taka gjald af ferðamönnum.

Gistináttaskatturinn er óréttlátur og ómarkviss skattlagning  sem ætti að leggja niður. Enginn er öruggur um að fá fyrirgreiðslu úr þeim sjóði þótt þörfin sé brýn.

Vinstri stjórnin notaði hann sem hvert annað glansnúmer til atvinnubótavinnu. Afhentur var hluti hans til þeirra sem hrópuðu hæst og voru í náðinni þá stundina.

Þjóðgarðsvörðurinn á Þingvöllum getur tekið gjald af köfurum. Eins gæti verið ákveðinn passi eða veiðikort sem gilti fyrir aðra er koma á svæðið. Menn verða að sjá að þjónusta komi á móti gjaldi. Hálendiskort gætu stuðlað að uppbyggingu vega væri skynsamlega unnið með hóflegt gjald sem eingöngu færi í vegabætur, upplýsingar um akstursleiðir, kort og fleira. Þeir sem njóta eiga að borga fyrir aðstöðu en ekki að taka af óskyldum.

 


mbl.is Greiða gjaldið með glöðu geði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband