Langur kveikur hjá RÚV. Ríkisútvarp út fyrir endimörk?

Eins og oft áður eru fréttamenn RÚV að fiska í grugguðu vatni. Skemmst er að minnast aðför fréttastofu að veitingastofu á Akureyri. Engar afsakanir eru til í orðabók RÚV og bætur duga  ekki til að bæta róg. Þegar í ofanálagt er einn aðili sem rannsakar og dæmir eru öll sanngirni fyrir bí.

Enginn mælir brottkasti bót. Að sýna enn og aftur gamlar myndir sem gögn er fyrir neðan allar hellur. Sama og þegar vikist er að minningu látinna einstaklinga með ásökunum. Ríkið er með margar eftirlitsstofnanir á sínum vegum. Að ætla einokunarútvarpi að stunda rannsóknir á fyrirtækjum og borgurum er út úr kú. Hvernig er hægt að ætlaðast til að 10 ára gamlar myndir af sjó eða úr hænsnabúi séu notaðar til að koma sök á skipstjóra. 

 

 


mbl.is Svipta Kleifaberg RE-70 veiðileyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óöryggi Trumps með full­trúa­deild Banda­ríkjaþings og flugmúrinn?

Konunnar hundrað sem sitja í fulltrúadeildinni og meirihluti demókrata er að valda áhyggjum hjá Trump. Aðeins 13 þing­kon­ur eru re­públi­kan­ar, tvær af indíánaættum og nokkrar íslamstrúar. Flestir ólög­legra inn­flytj­enda koma með flugi til Bandaríkjanna. Hvernig verður himinhár steinsteypumúr? Eitthvað vantar í aðgerðaáætlanir Trumps. 

Þegar heimsverslunin minnkar með höftum eru menn að fara inn í eigin svarthol. Geimfarinn veit varla hvað verður næst, þyngdarsviðið breytist ört. Eins og Stephen Hawking sagði: Togið í fætur geimfarans verður sterkara en togið í höfuð hans. ... slítur hann að lokum í sundur." Hjá Trump snýst allt um að ná næstu kosningum, ná hylli kjósenda sem eru með skammtíma markmið og minni. Forysturíkið í Ameríku mun þá dragast inn í skel sína. Fiska aðeins á heimamiðum?


mbl.is Kann að lýsa yfir neyðarástandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. janúar 2019

Um bloggið

sigurfang.blog.is

Höfundur

Sigurður Antonsson
Sigurður Antonsson
Sprotamaður í fyrirtækjarekstri. Áhugamaður um stjórnmál og viðskiptamál, leikhús og listir.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 20170304 172602
  • 20170304 172528
  • 20170304 172216
  • DSC_0007
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Birdseye-09.05.2016 nett-2000x1126
  • Kindur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband